13.03.1925
Neðri deild: 32. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 247 í C-deild Alþingistíðinda. (2334)
39. mál, vegalög Suðurlandsvegur
Frsm. (Sveinn Ólafsson):
Út af ummælum háttv. flm. (ÞorlJ) skal það fram tekið, að vegna póstafgreiðslunnar í Höfn, eða kauptúnsins, er engin þörf eða ástæða til að taka þennan innanhjeraðsveg, milli Hóla og Hafnar, í tölu þjóðvega. Það er ekkert einsdæmi um Hornafjörð, að póststöð eða kauptún liggi utan við þjóðveg, þvert á móti er þetta mjög víða. Eins og dæmi get jeg nefnt tiltölulega stór kauptún á Austurlandi, þar sem póststöð er, er öll liggja langt frá þjóðvegi, og frá sumum tæpast fært á landi til þjóðvegarins. Þessir staðir eru Norðfjörður, Borgarfjörður og Fáskrúðsfjörður. Líkt má segja um ýms kauptún á Vesturlandi, þar sem þjóðvegur kemur ekki nærri.
Með þessu er ekkert sagt um það, hvort hjer sje sanngirnismál á ferðinni, aðeins verður nefndin að halda því fram, að önnur kauptún á landinu, sem liggja utan við þjóðveginn, eigi þá jafnríka sanngirniskröfu til samskonar sambands við þjóðveginn sem hjer ræðir um.
Háttv. flm. (ÞorlJ) sagði, að kostnaður við Hafnarveginn yrði líklega ekki nema rúmlega 5 þús. kr., og áleit það óverulegan kostnað. Ef hann miðar við endurbygging vegarins, eins og hún er áætluð af vegamálastjóra, þá mun þetta rjett vera, en svo bætist þar við árlegt viðhald, og verður því kostnaður ríkissjóðs, ef frv. yrði samþ., nokkru meiri en byrjunarkostnaðurinn einn. — En um leið og þessi vegur yrði tekinn upp í tölu þjóðvega, mundu ýms önnur hjeruð álíta sjer misboðið og koma fram með svipaðar kröfur um viðauka við þjóðvegi, og mundi þá kostnaður ríkissjóðs af þessu frv. geta orðið miklu meiri en sjeð verður fyrir í fljótu bragði. Það er þetta steypiflóð af kröfum, sem nefndin vill koma í veg fyrir.