14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í C-deild Alþingistíðinda. (2342)

62. mál, vegalög Norðurlandsvegur

Bjarni Jónsson:

Það sannast hjer sem oftar, að sá, sem afsakar sig, hann ásakar sig. Öll ræða hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) sýndi greinilega, að nefndin hefir ekkert hugsað um málið. Nú fyrst dettur honum í hug að benda á veg milli fjórðunga, sem Dalasýsla á að leggja. (SvÓ: Jeg talaði um sýsluvegi.) Hjer er ekki um neina sýsluvegi að ræða. Hvaða hringbraut var hv. þm. að tala um? Var það norðurleiðin, eða var það hringbraut kringum íþróttavöllinn ? Hverskonar hringekja var hjer á ferðinni? Á hún að liggja yfir Holtavörðuheiði, eða með ströndum og kringum Vestfirði?

Nei, einfaldast verður að ákveða veginn yfir Bröttubrekku og frá Búðardal að Borðeyri. Hitt væri svo mikil fásinna, að jafnvel mestu sparnaðarmönnum þingsins gæti ekki komið til hugar að fleygja þannig fje í óbygðir. Þetta yrði ekkert dýrara, en gerði miklu meira gagn.

Jeg tek ekkert aftur af því, sem jeg hefi sagt. Það er óleyfilegt nefndum þingsins, að taka við málum og hrækja þeim síðan út úr sjer eftir ummælum einhverra manna út um bæ, eða fleygja þeim frá sjer með rökstuddri dagskrá. En hjer er svo hagað vinnubrögðum, að kosið er í nefndir eftir flokksfylgi, en ekki eftir því, hvort menn hafi vit á málum þeim, sem um þarf að fjalla. þetta er illa gert. Þingmenn hafa ekki tíma til að setja sig inn í hvert mál, og verða að varpa áhyggju sinni á nefndina. Svo þegar hennar starf er ekki annað en að drepa málið með rökstuddri dagskrá, þá tel jeg þingstörfunum illa farið, og það er hörmulegt, að slíkt komi niður á þessu máli, sem bæði er gott og þarft.

Vona jeg, að hv. þingmenn greiði ekki atkv. móti frv., án þess að færa skynsamleg rök fyrir máli sínu.