14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 257 í C-deild Alþingistíðinda. (2345)
62. mál, vegalög Norðurlandsvegur
Jón Auðunn Jónsson:
Jeg ætla að láta hv. þm. Dala. (BJ) vita, að þetta mál var mikið rætt í nefndinni, því að einn nefndarmanna var honum samþykkur um, að rjett væri, að vegurinn lægi yfir Bröttubrekku og Dali og eftir Laxárdal. En þegar um svo lítinn minnihluta var að ræða, sýndist tilgangslítið að kljúfa nefndina, Maður getur haft sína skoðun fyrir því. Jeg sýndi fram á, að það væri rjett hjá hv. þm. Dala., að þarna væri miklu skemri leið yfir óbygðir. En kostnaður við vegarlagninguna yrði mikill, líklega um 170 þús. kr. Þar sem ekki liggur fyrir að gera neinar stærri vegarumbætur í Norðurárdalnum eða á Holtavörðuheiði, finst mjer frv. vel geta beðið.