14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (2348)
62. mál, vegalög Norðurlandsvegur
Bjarni Jónsson:
Jeg vildi aðeins vekja athygli á því, hvernig hv. frsm. (SvÓ) kemur upp um vinnubrögð nefndarinnar, þar sem hann þrætir við 2 menn úr nefndinni og segir, að þeir hafi ekki sagt það, sem þeir telja sig hafa haldið fram. Hv. þm. (SvÓ) ætti að skaflajárna athygli sína, áður en hann ríður næst út á sitt athugaleysissvell.