16.03.1925
Neðri deild: 34. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í C-deild Alþingistíðinda. (2371)

45. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Jón Auðunn Jónsson:

Hv. þm. Borgf. (PO) hefir haldið því fram, að íslenskir skipstjórar væru meiri lögbrjótar á þessu sviði en útlendir. Hann sagði, að útlend skip toguðu varla innan við landhelgi, nema íslensk skip væru þar fyrir. Þetta er mesta fjarstæða. Jeg veit ekki til, að nokkurntíma hafi verið komið að íslenskum og útlendum skipum saman innan landhelgi. Hitt er tíðara, að eitt og eitt skip sje að ólöglegri veiði, því ekki má neinn vera til frásagnar. (HK: Einu sinni voru þau 12 saman.) Það getur verið, austur við sandana, en þá eru það þjóðverjar, sem eru að ólöglegum veiðum.

Það er rjett, að enskir togaraskipstjórar fá viðvörun, þannig, að þeir eru sviftir skipstjórn í 3–6 mánuði, en aldrei æfilangt, en á Þýskalandi og Frakklandi mun það ekki eiga sjer stað.

Það refsiákvæði, að dæma megi skipstjóra til fangelsisvistar fyrir landhelgisbrot, tíðkast ekki erlendis, en það felst jeg á, að gert sje hjer, en í þess stað koma háar sektir. Sumir meðmælendur frv. sögðu reyndar, að sektirnar væru ekki háar, í hlutfalli við umsetningu skipanna. En það er rangt og bygt á ókunnugleika. Skal jeg því til sönnunar benda á ákvæðin um refsingu fyrir síldveiði útlendinga í landhelgi.