16.03.1925
Neðri deild: 34. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 295 í C-deild Alþingistíðinda. (2374)
45. mál, bann gegn botnvörpuveiðum
Pjetur Ottesen:
Jeg get ekki leitt hjá mjer að benda á það, að tveir hv. andstæðingar þessa frv. hafa Verið að hrekja hvor annars skoðun. Hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) sagði, að það væri eiginlega næg trygging í þessum háu sektum, sem nú væru, því útgerðarmenn myndu umsvifalaust láta reka skipstjórana af togurunum, ef þeir yrðu sektaðir fyrir landhelgisbrot. Nú segir hv. 1. þm. G.-K. (ÁF), að menn skuli ekki vera þau börn að halda, að útgerðarmennirnir láti þessa duglegu skipstjóra fara af togurunum, þó þeir yrðu sektaðir; þeir myndu vera eftir sem áður, og einhver þá látinn leppa fyrir þá.
Þetta er þá umsögn og álit þessa hv. þm. (ÁF), og má hann þar gerst um vita, og við flm. þessa máls getum ekki svarað háttv. 3. þm. Reykv. (JakM) betur, þegar hann er að bera fram fullyrðingar um, að nægilegt sje að hækka sektarákvæðin. Eftir þessu er það eina ráðið til öryggis fyrir því, að íslensku togararnir veiði ekki í landhelgi, að svifta skipstjórana rjettindum sínum. Og það er einmitt það, sem við flm. þessa frv. leggjum til.