09.03.1925
Neðri deild: 29. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 312 í C-deild Alþingistíðinda. (2395)

51. mál, lokunartími sölubúða

Frsm. (Jón Baldvinsson):

Jeg sje ekki annað ráð fyrir hendi en að umr. verði frestað einn daginn enn, svo hv. þm. Dala. (BJ) gefist kostur á að lesa nál. Því eins og þm. (BJ) talar, er það öllum auðsætt, að hann hefir ekki lesið nál. og veit því ekki, hvað hann er að fara, þegar hann er að tala um brauðsölubúðirnar. Með frv. er bæjarstjórn gefin heimild til þess að loka öllum brauðsölubúðum kl. 7. Þegar búið er að benda hv. þm. á þetta og hann hefir lesið nál. — (BJ: Það er ekkert nál.) — jú, það er á þskj. 125 — þá vona jeg, að hann sjái að sjer og viðurkenni, að hann hafi vaðið reyk í þessu máli, og alt hans tal tómar fjarstæður og öfgar, og þegar hann er búinn að kynna sjer nál., mun hann sannfærast um, að öllum sje fyrir bestu, að frv. gangi fram.

Það er áreiðanlegt, að það verður öllum fyrir bestu, að sölubúðum og þeim búðum og vinnustofum, sem frv. ræðir um, sjeu sett takmörk fyrir því, hversu lengi megi halda opnu. Og almenningur hefir heldur engin óþægindi af þessu. Þegar menn vita, hvenær loka skal, þá haga menn viðskiftunum eftir því. Nú er t. d. engin óánægja yfir því, þótt sölubúðum kaupmanna sje lokað kl. 7 að kvöldi. En búðalokunarlögin hafa verið stórmikil rjettarbót fyrir verslunarfólkið, því að alkunnugt er, að áður ljetu sumir kaupmenn þjóna sína standa í búðunum frá því snemma á morgnana og alt fram til miðnættis. En þegar hv. þm. Dala. (BJ) hefir áttað sig á öllu þessu, vona jeg, að hann taki brtt. sína aftur og greiði frv. atkv.