07.03.1925
Efri deild: 25. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 337 í C-deild Alþingistíðinda. (2418)

82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar

Einar Árnason:

Jeg stend ekki upp til þess að andmæla frv. þessu. Þó vildi jeg vekja athygli hv. þm. á því, að verði frv. samþ., hlýtur það óhjákvæmilega að draga nokkurn dilk á eftir sjer. Sumir hv. þm. muna e. t. v. eftir því, að fyrir fáum árum óskaði Siglufjarðarkaupstaður að fá keypta lóð þá, sem bærinn stendur á, og var borið fram frv. þess efnis hjer í þinginu. Eins og kunnugt er, stendur Siglufjarðarkaupstaður að mestu leyti í landi kirkjujarðarinnar Hvanneyrar, og fór frv. fram á, að Siglufirði gæfist kostur á að fá jörð þessa keypta. Afdrif þess máls urðu þau, að bænum voru heimiluð kaup á jörðinni, að undanskildri svokallaðri Siglufjarðareyri. En það er einmitt á þeirri eyri, sem bærinn stendur aðallega, og er hún því langsamlega verðmesti hluti jarðarinnar og sá hluti, sem kaupstaðurinn hafði sjerstaklega augastað á til eignar. Vegna þess, að Alþingi tók þessari málaleitun Siglufjarðar þannig, varð ekkert úr því, að kaupstaðurinn festi kaup á því landi, sem honum var heimilað, og hafa því engin kaup eða sala farið þar fram enn.

Nú geri jeg ráð fyrir, að flestar hinar sömu ástæður, sem mæla með því, að Vestmannaeyjakaupstaður fái keyptar Eyjarnar allar, eða nokkurn hluta þeirra, sjeu líka fyrir hendi að því er Siglufjörð snertir. Má því ganga að því vísu, ef frv. þetta verður samþ., að þá muni Siglufjarðarkaupstaður enn á ný bera fram óskir um að fá keypta Eyrina og land það, sem henni fylgir, og fæ jeg ekki sjeð, að þá verði hjá því komist, að verða við þeim óskum.

Jeg taldi rjett að vekja athygli á þessu atriði í sambandi við frv. þetta, án þess að jeg segi nokkuð um það, hvernig jeg muni greiða atkvæði í máli þessu.