07.04.1925
Efri deild: 49. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í C-deild Alþingistíðinda. (2430)
82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar
Atvinnumálaráðherra (MG):
Mjer skilst ágreiningurinn í þessu máli vera um það, hvort fá eigi frekari upplýsingar viðvíkjandi söluverði Eyjanna. Annars hefir mjer heyrst á hv. 5. landsk. (JJ) og hv. 2. þm. S.-M. (IP), að þeir hafi ekki enn tekið afstöðu til þess, hvort selja skuli eða ekki. Þó er hjer verið að ræða um verðið. Jeg skil ekki, hversvegna nefndin getur ekki tekið hreina afstöðu til þess, hvort selja skuli, ef nægilega hátt verð fæst; það hefði hún átt að geta gert. Til hvers er að leggja fram öll gögn og afla upplýsinga um verðmæti Eyjanna, ef fyrirfram er ákveðið að selja ekki? Því hefir verið haldið fram, að þetta væri lítið rannsakað af stjórnarinnar hálfu. En að því verður að gæta, að þetta er þingmannsfrumvarp og að stjórnin hefir ekki verið beðin um neina rannsókn. Nefndin hefir kallað mig á einn fund og spurt um álit mitt, en alls ekki beðið um neina skýrslu. Það þýðir því ekkert að vera að tala um, að málið hafi verið litið rannsakað, eða að minsta kosti er það mál stjórninni óviðkomandi.
Það hefir verið minst á þjóðjarðasöluna í þessu sambandi. Jeg viðurkenni, að þetta er skylt. En jeg hefi líka altaf verið með þjóðjarðasölu, af því að jeg hefi sjeð, að menn gera meira fyrir sínar eigin jarðir heldur en leigujarðir. Jeg var um eitt skeið móti sölu kaupstaðarlóða þeirra, sem ríkissjóður á, en jeg er meira og meira að hverfa frá þeirri stefnu og hallast að því, að rjett sje að selja kaupstöðunum lóðirnar. Og þetta byggi jeg á því, að reynslan sýnir, að ríkissjóður hefir tiltölulega mjög lítið upp úr lóðaeignum sínum, og veldur þar um miklu, hversu erfitt er að stjórna þessum eignum hjeðan úr Reykjavík, og hefir það einmitt komið fram á Vestmannaeyjum einna átakanlegast.
Út af því, sem talað hefir verið um fasteignamat Eyja, þá játa jeg, að það er hærra en það, sem hjer er stungið upp á. Jeg veit ekki, við hvað það hefir verið miðað. En það getur ekki verið miðað við það, sem lóðirnar gefa af sjer til ríkissjóðs, heldur þá við söluverð leigurjettindanna manna á milli. En við það er ekki heimilt að miða í Vestmannaeyjum í þessu efni, ef ríkissjóður á að selja. Þá er ekki hægt að miða við annað en hvað ríkissjóður hefir upp úr Eyjunum nú og í fyrirsjáanlegri framtíð, því að hvað stoðar það ríkissjóð, þótt lóðarleigjandi, sem hefir fengið leigurjett til 80 ára, geti selt rjett sinn dýru verði? Ríkissjóður fær ekki undir neinum kringumstæðum meira en umsamda leigu. Hitt er eign leigutaka, eftir landslögum.
Það má án efa saka undanfarandi stjórnir fyrir það, að þær hafi leigt lóðirnar til svo langs tíma gegn litlu endurgjaldi, en það bætir ekki úr, því að það verður ekki út skafið, að lóðirnar eru leigðar, og þegar ákveða á söluverðið, verður ekki hjá því komist að taka tillit til þessarar stórkostlega verðlækkandi kvaðar, sem á lóðunum hvílir í 70–80 ár. Þetta tillit tekur fasteignamatið ekki; það er ekki miðað við arð ríkissjóðs af Eyjunum, heldur við verðmæti leigurjettarins fyrir leigutaka. Og þetta er rjettur grundvöllur undir matinu, vegna þess, að hjer er um skattmat að ræða, en ekki mat til sölu.
Það hefir verið sagt hjer, að Eyjunum hafi verið fremur illa stjórnað, og get jeg ekki annað en viðurkent það. Jeg segi þetta ekki til ámælis fyrv. stjórn eða núverandi, því að það er ómögulegt fyrir stjórnina að mynda sjer skoðun um lóð langt í burtu, hvort hún er leigð hæfilega dýrt. Í þessu tilfelli hlýtur stjórnin að fara eftir áliti umboðsmannsins í Vestmannaeyjum. Ef hann er ekki nægilega hagsýnn, þá fer eins og hjer hefir farið. Jeg veit ekki, hvað ætlast er til að stjórnin geri í þessu máli, ef frv. verður felt og rökstudda dagskráin líka, hvort þá er ætlast til, að stjórnin rannsaki málið og láti meta eignina. Væri gott að fá bendingu um þetta.
Hv. 5. landsk. (JJ) sagði, að jeg á nefndarfundi hefði komið með tilboð um að selja Eyjarnar fyrir 250 þús. kr. Þetta er ekki rjett. Jeg hefi alls ekki heimild til þess að gera neitt tilboð. Jeg sagði, að það mundu renna á mig tvær grímur, ef boðin væri miljón. Hv. þm. (JJ) verður að hafa rjett eftir.
Hv. þm. (JJ) sagði, að með þessu stórskaðaði jeg ríkissjóð, ef það gengi fram. En það kunna fleiri að reikna en hann. Eins og kunnugt er, hefir ríkissjóður nú upp úr Eyjunum verðmæti árlega, sem nemur 5% af 200 þús. kr. En ef þær væru seldar fyrir 250 þús. og gert ráð fyrir ca. 6% vöxtum, hvað yrði þá hagnaðurinn orðinn mikill, þegar núverandi samningar ganga úr gildi? Vill ekki hv. þm. (JJ) gæta að því? Hann gleymdi alveg þessu atriði, og það kalla jeg að reikna skakt.
Enn má benda á, að meðan ríkið á Eyjarnar, verða gerðar miklu meiri kröfur til ríkissjóðs. Hann getur orðið að inna af hendi margvísleg gjöld, sem annars myndu sparast.
Hv. þm. (JJ) sagði, að það væru sömu skilyrði fyrir verðhækkun á lóðum í Vestmannaeyjum og í miðbænum í Reykjavík, en það leyfi jeg mjer að efast um, svo lengi sem ríkissjóður lætur lóðir á leigu í Vestmannaeyjum fyrir svo lága leigu sem nú er. Þá sagði hv. þm. ennfremur, að ríkið hefði búið vel að Eyjaskeggjum, og það er alveg rjett, enda er mjer ekki kunnugt um, að þeir hafi nokkurntíma vanþakkað það, og ríkissjóður hefir verið miklu betri lánardrottinn fyrir Eyjaskeggja en sjálfan sig. Ef hyggilega hefði verið að farið, hefði verið hægt að hafa miklu meira upp úr lóðunum en gert hefir verið, og því hygg jeg, að betra sje fyrir Vestmannaeyjabæ að fá þessar lóðir, heldur en fyrir ríkissjóð að hafa þær, þótt þær hækki í verði. Þá var hv. þm. að tala um einhvern „juridiskan“ rjett, sem þeir hefði til framleigu, en ekki „moralskan“. Það skil jeg ekki, því ef maður hefir „juridiskan“ rjett til framleigu, hvað á þá að verða af þeim rjetti hans, þegar maðurinn deyr? Og ef svo væri, að hjer væri ekki um neinn lagalegan rjett að ræða, heldur einhverja siðferðislega skyldu, hvaða gagn væri að því? Menn fara í viðskiftum eftir sínum lagalega rjetti og engu öðru. Það þýðir því ekki að halda hjer fyrirlestur um það, hvað menn eigi að gera, eftir einhverjum siðferðislegum reglum, sem einhver maður býr til; það verður farið eftir landslögum, og eftir öðrum reglum getur þingið alls ekki farið.