07.04.1925
Efri deild: 49. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í C-deild Alþingistíðinda. (2432)
82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar
Frsm. meirihl. (Ingvar Pálmason):
Jeg hefi ekki miklu að svara, því að hv. 1. landsk. (SE) og hv. 5. landsk. (JJ) hafa að miklu leyti svarað því, sem svara þurfti.
Jeg heyrði hv. flm. (JJós) geta þess í upphafi ræðu sinnar, að þegar jeg hefði komið að fasteignamatinu, þá hefði sá grundvöllur skolfið líka. Já, jeg skal játa það, að jeg lít svo á, að eftir fasteignamatinu sje ekki hægt að fara, en jeg hefi þó tekið meira tillit til þess heldur en hv. flm. (JJós); annars er hjer ekki mikið um fasteignamatið að ræða. Jeg benti á það í fyrri ræðu minni, að samanborið við fasteignamat Siglufjarðar kemur fram ósamræmi í matinu á Vestmannaeyjum. Í Vestmannaeyjum er matið yfir 640 þús. kr., en á Siglufirði yfir 1 milj. og 300 þús. kr., en menn, sem komið hafa á báða staðina, líta svo á, að þar sje um allmikinn stærðarmun að ræða, þannig, að lóðir á Siglufirði eru að mun minni en í Vestmannaeyjum, auk þess sem Eyjarnar hafa allstórt óbygt land, bæði á heimaeynni og í úteyjum, og því verður maður að álita, að á Siglufirði sje mjög hátt matið, en í Vestmannaeyjum lágt að sama skapi. Þessu verður naumast mótmælt, enda höfum við borið okkur saman við menn, sem eru þessu máli mjög kunnugir, og þeir hafa kannast við, að þeir hefðu hugmynd um, að svo gæti verið. Þetta virðist mjer benda til þess, að fasteignamatið geti ómögulega verið of hátt á Vestmannaeyjum. Að öðru leyti hygg jeg, að hv. flm. hafi verið svarað. Þó vil jeg taka það fram strax, af því að hv. þm. (JJós) benti á það, hvort sem það var í ræðunni sjálfri eða innskot í ræðu einhvers annars hv. þm., að ef matið hjá hinni fyrirhuguðu nefnd, samkv. brtt. hv. flm., þætti of lágt, þá gæti stjórnin hækkað það. En það er nú einmitt það, að jeg vil ekki, að gefnu tilefni, eiga undir því, að stjórnin hækki matið, einmitt af því, að sá ráðherra, sem með þessi mál fer, hefir ótvírætt látið það í ljós við nefndina, að hann, fyrir sitt leyti, teldi 250 þús. kr. sæmilegt verð á þessum lóðum, og þá geta hv. deildarmenn skilið, að jeg get ekki bygt á því, þótt samkv. brtt. færi fram lágt mat á Vestmannaeyjum, að þá myndi stjórnin nokkuð fara að bæta úr því. Annars er ekki mikil ástæða til að ræða frekar um þetta mál. Mjer finst, að af nefndarinnar hendi hafi verið færð fullgild rök fyrir því, að eins og málið liggur nú fyrir, getur þingið ekki tekið fasta ákvörðun um söluverðið. (JJós: Það er enginn að fara fram á það.) Jú, það er enginn efi á því, aðeins er því svo fyrir komið, samkvæmt brtt. minnihl., að þingið á að afsala sjer rjetti til að geta tekið ákvörðun um það síðar. En því erum við meirihl. algerlega á móti. Við viljum ekki kasta frá þinginu ákvörðunarrjetti um söluverðið; það leggjum við áherslu á. (JJós: Hv. þm. (IP) ætti þá að koma með brtt. í þá átt, að þingið eigi að leggja samþykki sitt á það.) Jeg tel það ekki fullnægjandi, vegna þess, að það er ekki alveg víst, að það komi fram nægar upplýsingar til þess. Það eru einmitt upplýsingarnar, sem við viljum fá, til þess að Alþingi geti dæmt rjettlátlega í þessu máli.
Hæstv. forsrh. (JM) gat þess, og jeg býst við, að það sje rjett, að salan á Siglufirði hafi dagað uppi vegna þess, að það var litið svo á, að það gæti verið um þá hættu að ræða, að eignin kæmist að einhverju leyti í hendur útlendinga. Mjer er nú spurn: Getur sú hætta ekki líka verið með Vestmannaeyjar? Jeg hygg, að svo geti jafnvel verið. Einnig sagði hæstv. forsrh., að nú væru leigðar nokkrar lóðir í Vestmannaeyjum svo háu verði, að ekki gæti komið til mála að hækka þær frekar, en hitt er og vist, að allmargar lóðir þar eru leigðar svo lágt, að vafalaust verður eftirgjald þeirra hækkað allmikið, þegar þær losna úr ábúð, og það hefir hv. flm. (JJós) líka játað, því að hann var að tala um, að það væri ekki ósanngjarnt, að þær væru hækkaðar þrefalt. Svo að það er áreiðanlegt, að eitthvað af lóðum í Vestmannaeyjum er leigt of lágt; það kom líka nokkuð fram hjá hæstv. atvrh. (MG), sem jeg mun víkja að síðar.
Hæstv. atvrh. sagði, að sjer fyndist meirihl. nefndarinnar kasta þessu máli of snemma frá sjer. Jeg get ekki skilið þetta, því að mjer finst einmitt, að það, sem meirihl. nefndarinnar leggur til, sje það, að kasta því ekki frá þinginu og í hendur stjórnarinnar. Jeg býst við, að það liggi í orðum hæstv. ráðherra (MG), að honum þyki nefndin ekki hafa rannsakað það nógu rækilega. En það er til of mikils mælst af þingnefnd, sem hefir mörg störf með höndum, að hún geri það á einu þingi, þegar stjórnin hefir ekki gert það. Hæstv. atvrh. sagði, að það hefði ekki verið nein ástæða til fyrir stjórnina að rannsaka málið, vegna þess, að þetta væri ekki stjfrv., það væri flutt af þingmanni, og þetta því frekar verk nefndarinnar. En jeg verð að líta svo á, að þegar hæstv. atvrh. telur sig geta látið í ljós sína skoðun á málinu, þá verður að vænta þess, að hann hafi eitthvað verið búinn að rannsaka það, og á fundi hjá nefndinni lýsti hann yfir því, að hann fyrir sitt leyti teldi 250 þús. kr. sanngjarnt verð. Ímynda jeg mjer, að hæstv. ráðherra (MG) hafi bygt þetta álit sitt á einhverri rannsókn. En hitt skal jeg játa, að jeg tel þá rannsókn alt of litla.
Þá sagðist hæstv. atvrh. ekki vita, við hvað fasteignamatið hefði verið miðað, en taldi líklegt, að það hefði verið miðað við einhverja sölu, sem farið hefði fram á lóðunum. En jeg verð að álíta, að slík sala hafi ekki getað átt sjer stað, þessvegna sje það útilokað, en hitt sönnu nær, að miðað hafi verið við það, sem matsmenn hafi talið hæfilegt söluverð á þeim tíma, ef selt hefði verið. En þá getur maður líka fyllilega haft leyfi til þess að draga af því þá ályktun, að það hafi þá ekki síður verið litið á frá sjónarmiði kaupanda heldur en seljanda. En þá bendir það frekar á, að matið sje fulllágt.
Það kemur málinu ekki við, að minnast á, að hæstv. atvrh. kannaðist við það, að umboðsmenskan í Vestmannaeyjum hefði verið í ólagi, og er ekkert við því að gera. En jeg hygg, að ef stjórninni hefði verið kunnugt um það, þá hefði hún tafarlaust getað bætt úr því. En það getur náttúrlega hafa átt sjer stað, að ólagið hafi verið, en stjórninni ekki kunnugt um það. Annars finst mjer þetta ólag, sem sagt er, að sje á umboðsmenskunni í Vestmannaeyjum, styrkja málstað okkar, sem ekki viljum byggja álit okkar á því ástandi, sem nú er.
þá mintist hæstv. atvrh. á það, að hv. 5. landsk. (JJ) væri ekki góður í reikningi, og sennilega þá ekki meirihl. í fjhn. heldur. Jeg skal ekki fást um þetta álit hæstv. atvrh.
En ef ríkissjóður hefir ráð á að leggja til hliðar söluverð Vestmannaeyja og ávaxta það, hví skyldi hann þá ekki eins geta lagt afgjaldið til hliðar? Jeg sje því ekki, að orð hæstv. atvrh. (MG) um þetta sanni neitt hans mál, heldur hið gagnstæða.
En að hægt verði að komast hjá kostnaði fyrir ríkissjóð af Eyjunum, ef þær verða seldar, er hin mesta fjarstæða, nema þá því aðeins, að þær yrðu gerðar að sjálfstæðu ríki. (JJ: Og gera Jóhann að konungi yfir þeim!) Þeir um það, Eyjaskeggjarnir, hvern þeir hefðu fyrir konung sinn. En ríkið losnar ekki við kostnaðinn af Eyjunum fyr.
Nei, spursmálið er ekki um þetta, heldur hitt, á að selja Eyjarnar eða ekki? Og þá fyrir hvað mikið.
Eins og meirihl. fjhn. hefir látið í ljós, verð jeg að telja hyggilegast að taka enga endanlega ákvörðun um það nú á þessu þingi, heldur skjóta því á frest til frekari athugunar. En því verð jeg að halda fram, að Alþingi eigi hjer úrskurðarvaldið.
Hæstv. atvrh. sagði, að ef hyggilega væri á haldið, mætti hafa miklu meira upp úr Eyjunum en nú er gert. Þessi ummæli hæstv. ráðherra verð jeg að taka meirihl. nefndarinnar til inntekta. Því að eftir þessu er eiginlega ekkert til, sem hægt er að byggja sölu Eyjanna á, úr því að það er játað, að aldrei hafi verið haft eins mikið upp úr Eyjunum og hægt hefði verið, aðeins ef hyggilega hefði verið að farið.
Jeg sje því ekki betur en öll þessi andmæli, sem fram hafa komið, styrki álit meirihl., en veiki álit hins.
Þá vil jeg víkja örfáum orðum að hv. 1. þm. Rang. (EP). Hann mintist á þjóðjarðasöluna. Þar erum við tveir á andstæðri skoðun, og við það er ekkert að athuga. En hann mintist líka á, að fyrir þinginu lægi frv. um að heimila bæjarstjórn Siglufjarðar að leggja skatt á lóðir í kauptúninu. Og mjer skildist hann halda því fram, að ríkissjóður ætti að greiða þennan skatt. En jeg lít svo á, að þeir, sem nota lóðirnar eða hafa þær leigðar, eigi að greiða hann. Og jeg fyrir mitt leyti tel slíka heimild sanngjarna, til þess að bæjarfjelögin geti fengið gjöld af lóðum, sem oft eru mjög lágt leigðar. Og ef slíkt frv. lægi fyrir frá Vestmannaeyjum, myndi jeg fylgja því, eins og jeg fylgi frv. um slíka heimild fyrir Siglufjörð.
Að síðustu vil jeg enda orð mín með því að undirstrika það, sem bæði jeg og meðnefndarmenn mínir eru margbúnir að taka fram, að þegar endanleg ákvörðun um sölu Vestmannaeyja verður tekin, þá verði hún bygð á samþykt Alþingis, en ekki á ákvörðun neinnar nefndar.