07.04.1925
Efri deild: 49. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í C-deild Alþingistíðinda. (2439)

82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar

Frsm. meirihl. (Ingvar Pálmason):

Mjer finst fremur lítið bera hjer á milli. Hæstv. atvrh. (MG) hefir viðurkent, að hafa nefnt 250 þús. kr., og öðru hefir ekki verið haldið fram en að hann hafi nefnt það verð, sem hugsanlegt væri að selja fyrir. Hæstv. ráðh. (MG) sagðist hafa hagað orðum sínum þannig, að á sig myndu renna tvær grímur, ef boðnar væru 250 þús. kr. fyrir Eyjarnar. Jeg sagði, að hann hefði ekki talið það verð ósanngjarnt, og við það stend jeg, enda þótt hv. þm. Vestm. (JJós) hafi gleymt þeim orðum.