08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1037 í B-deild Alþingistíðinda. (245)
1. mál, fjárlög 1926
Forsætisráðherra (JM):
Jeg bað hæstv. atvrh. (MGr) að minnast fyrir mig á þá einu brtt., sem jeg hefi gert við fjárlögin. Taldi jeg mjer skylt að bera þessa brtt. fram, því að Trausti Ólafsson hefir orðið fyrir rangindum, er sett var niður þóknun hans á þinginu í fyrra. Vona jeg, að hv. deild taki brtt. vel.
Þá er það ein brtt. frá hv. fjvn., er jeg vildi minnast á og kvarta um, en það er sú brtt., að fella niður styrk til útgáfu kenslubóka við mentaskólann. Það er sjálfsagt öllum skólamönnum vitanlegt, að óheppilegt er að þurfa að hafa kenslubækur á útlendum málum, ekki síst kenslubækur í sögu. Og kennurum er vitanlega miklu auðveldara að kenna sögu á íslensku heldur en á útlendu máli, og nemendum að nema. Vona jeg, að brtt. verði ekki tekin til greina, því síður sem hjer er verið að styrkja verk, sem þegar er byrjað á og þingið hefir lagt fje til áður.