14.04.1925
Efri deild: 51. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 406 í C-deild Alþingistíðinda. (2456)
82. mál, sala á hluta af kaupstaðarlóð Vestmannaeyjabæjar
Einar Árnason:
Það eru örfá orð út af því, sem hæstv. atvrh. (MG) tók fram, að stjórnin gæti naumast borið fram þáltill. Jeg get ekki fallist á, að það sje rjett. Hann tók það fram, að þáltill. væri venjulega áskorun á stjórnina; en það þarf ekki nærri því æfinlega að vera og er heldur ekki svo. Þál. getur verið og er oft heimild fyrir stjórnina, og meira að segja eru dæmi til, að þingið hafi samþ. þáltill., sem var hvorki áskorun nje heimild, heldur bein ákvörðun. Formið getur verið margvíslegt.
Jeg lít svo á, að stjórnin geti alveg eins borið fram þáltill. í heimildarformi, eins og t. d. frv., sem heimila stjórninni hinar og þessar framkvæmdir.
Hvað það snertir, að þeir greiði atkv. með þessari till., sem vilja selja, en hinir ekki, þá verð jeg að segja það, að það er ekki hægt að slá neinu föstu um það nú, hvernig þeir menn muni haga sjer í framtíðinni, sem greiða atkv. með till. Enda óþarfi að vera með bollaleggingar um það.
Viðvíkjandi því, sem hæstv. forsrh. (JM) tók fram um hæstarjett, þá skildi jeg hann svo að lokum, að hann sæi ekki ástæðu til að vera á móti þessu formi, að hæstirjettur útnefndi matsmenn. Okkur flm. till. var þetta nokkurnvegin ljóst, sem hæstv. forsrh. tók fram viðvíkjandi forminu, en fundum ekki frambærilegar ástæður gegn því, að hæstirjettur kæmi þarna í stað bæjarfógeta.