06.03.1925
Neðri deild: 27. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (2470)

71. mál, bann gegn áfengisauglýsingum

Flm. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða um frv. þetta. Það lá fyrir þinginu í fyrra, og var því þá vísað til hv. allshn. Það er borið fram aftur í sömu mynd og þá, og sömu ástæður liggja til, að við berum það fram, sem við gerðum grein fyrir þá. Vil jeg leggja til, að því verði nú aftur vísað til allshn.