13.03.1925
Neðri deild: 32. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 442 í C-deild Alþingistíðinda. (2488)
7. mál, sjúkratryggingar
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg skal ekki verða langorður. En hv. þm. Dala. (BJ) vildi jeg segja það, að jeg get ekki gengið inn á að fella burtu greinarnar, sem hann nefndi. Jeg gæti raunar gengið inn á að fella burtu 17. gr., en ekki þá 14. Annars held jeg, að ræða hans hafi verið bygð á misskilningi. Öll önnur ákvæði berklavarnalaganna standa óhreyfð, svo að það fer alveg fyrir ofan garð og neðan, að aðrir en læknar geti haft áhrif á, hvaða sjúklingar leita sjer lækninga.
Út af ræðu hv. þm. Ak. (BL) þarf jeg ekki að taka annað fram en það, að ef hann hefir ekki annað við frv. að athuga en það, sem hann nefndi, þá gat hann hæglega bætt úr því með brtt. Jeg er alls ekki á móti því, að frv. fari til bæjarstjórna og sýslunefnda, en jeg vil, að málið sje rjett reifað.
Hv. frsm. (BSt) vildi ekki í seinni ræðu sinni undirskrifa álit Berklavarnafjelagsins. Í raun og veru er nefndin aðeins sammála um það, að málið eigi ekki fram að ganga nú, og að ekki sje rjett að taka berklakostnaðinn út úr. Um annað er nefndin og Berklavarnafjelagið ekki sammála. Jeg veit af viðtali við menn utan úr sveitum, að þeim þykir kostnaðurinn liggja þungt á sýslusjóðunum, og þykist jeg því vita, að sýslunefndirnar muni líta með sanngirni á þetta mál. En það er ekki rjett að lýsa frv. þannig, að það sje nefskattur og annað ekki.
Svo skal jeg víkja að þjóðarsparnaðinum. Hv. frsm. hafði það á móti frv., að það væri ekki til sparnaðar fyrir þjóðina. En menn verða nú veikir, hvað sem öll lög segja, og spurningin er aðeins um það, hvernig eigi að skifta kostnaðinum niður. Það virðist sanngjarnt, að allir leggi eitthvað af mörkum, til þess að mynda sjóð, er borið geti kostnaðinn. Þetta er grundvallarhugsunin, sem jeg vil, að fái að njóta sín, svo að landsmenn dæmi ekki um frv. á röngum grundvelli. Hv. frsm. gat þess, að komið gæti fyrir, að húsráðendur yrðu að greiða gjaldið fyrir kaupafólk sitt. Venjulega ætti þeim þó að vera í lófa lagið að halda eftir af kaupinu fyrir þessu gjaldi. Það er nokkuð annað um útsvör, þar sem upphæðin er ótiltekin. Þetta væri nokkuð líkt og um ellistyrktarsjóðsgjaldið, og jeg hygg, að ekki sje alltítt, að húsráðendur þurfi að greiða það úr eigin vasa.
Mjer skildist á hv. frsm., að hann efaðist um, að sjóður safnaðist. En það er ekki hægt að draga það í efa, þar sem lögákveðinn hluti á að leggjast til hliðar, svo að sjóðurinn hlýtur að aukast. Svo má vona, að berklavarnirnar hafi þau áhrif, að veikin minki, ekki síst þar sem fram er komið meðal, sem reynist gott, þó ekki eigi það við alla. Nýkomin erlend blöð segja, að það vinni sjer meiri og meiri orðstír.
Það má kanske segja, að þetta sje þungur skattur á fátæka menn, en yfirleitt er það samt ekki, að minsta kosti ekki í samanburði við veikindin sjálf, og einmitt þeir fátækustu fá trygginguna strax. Og eins og hv. frsm. sjálfur benti á, má greiða gjaldið fyrir fátæklinga, án þess það sje talinn sveitarstyrkur. Og þótt þeir tækju ef til vill nokkuð nærri sjer að borga iðgjöld, finst mjer það ekki ósanngjarnt, þegar á það er litið, að þeir hafa forgangsrjett til að fá úr sjóðnum, ef veikindi ber að höndum. Hv. frsm. þótti ranglátur samanburðurinn við sjúkrasamlögin. Þar greiða allir jafnhá gjöld, og ríkissjóður leggur fram fje, en munurinn þar og hjer eftir frv. er sá, að þar á hver maður heimting á greiðslu, en hjer aðeins fátæklingar. Tel jeg vel hægt að bera þetta saman. Hann sagði og, að ekki væri hjer um almennar sjúkratryggingar að ræða. Það er alveg rjett, enda tók jeg það fram, er jeg lagði frv. fyrir hv. deild. Æskilegast væri auðvitað, að allir væru trygðir, en meðan enginn fastur grundvöllur er, er ekki gott að vita, hvaða iðgjöld á að setja. Ókleift er að setja hátt iðgjald í fyrstu, og er jeg samþykkur hv. frsm. í því, að fara þurfi varlega í þessu efni, enda finst mjer frv. gera ráð fyrir því.