15.04.1925
Neðri deild: 56. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í C-deild Alþingistíðinda. (2533)

33. mál, lærði skólinn

Tryggvi Þórhallsson:

Það gleður mig, að hv. þm. Dala. (BJ) stendur hjer við hlið mína, því að það er eingöngu af kurteisi við hann, að jeg tek til máls, til þess að kvitta fyrir þann fagra vitnisburð, sem hann gaf hæfileikum mínum. Jeg er að vísu feiminn við að taka til máls, eftir öll þessi „præ“, sem hv. þm. (BJ) gaf mjer, og líka fyrir þær námsgreinar, sem hann hefir ekki kent mjer. Annars hefi jeg fáu að svara. Það, sem jeg setti út á frv., var það, að það væri ekki nægilega undirbúið. Hv. þm. (BJ) vjek að því, og svaraði á einn veg. Hann vjek að undirbúningi kensluskipulags í mentaskólanum og talaði um, hve hann væri fær um að ganga frá þeim málum. Hann tók fram, að hann væri best til þess fær af þeim, sem hjer væru inni, og þar sagði hann ekki of mikið, því að hann er einn af okkar bestu kennurum. Jeg kvartaði heldur ekkert að þessu leyti. En málið hefir fleiri hliðar. Það hefir líka sína fjárhagshlið. Það hefir fjárhagslegar afleiðingar um skipun skólamála að öðru leyti. Jeg færði rök að því, að málið væri ekki nóg undirbúið að þessu leyti. Og þar sem jeg hefi gefið hv. þm. Dala. (BJ) svona góð meðmæli, að því er snertir skipulag kenslunnar, skal jeg taka fram, að jeg ber ekki eins gott traust til hans að því er snertir fjárhagshliðina. Jeg held því fram, að þar hafi honum skjátlast undirbúningurinn. Á þeim grundvelli fer jeg fram á, að málinu sje frestað. Annars verð jeg að segja það, að hv. þm. Dala. (BJ) er ekki eins hreinskilinn nú og oft áður, og ekki eins hreinskilinn og við 2. umr. Við 2. umr. málsins játaði hv. þm. Dala. (BJ), að ein afleiðingin af þessu væri gagnfræðaskóli í Reykjavík með 400–500 manns. Þá játaði hann, að þetta leiddi af sjer mikinn kostnað, en nú er orðið annað uppi á teningnum. Nú vill hann láta líta svo út sem þetta sje sparnaður. Hv. þm. Dala. (BJ) hefir tekið á sig nýjar myndir, sem fara honum illa. Fyrir hverja er hann að dansa? Við hverja er hann að vingast, er hann breytir svo sjálfum sjer? Frv. er, eins og hann lýsti því, sparnaðarfrv. En það er þvert á móti því, sem það á að vera frá hans hálfu, því að sannarlega er hv. þm. Dala. ekki vanur að beita sjer fyrir sparnaðarfrumvörpum.

Fyrstu myndina tók hann á sig, þegar hann hjelt því fram, að heimavistirnar, sem gert er ráð fyrir í brtt. á þskj. 272, þyrftu ekkert að kosta. Jeg verð að segja, að jeg trúi betur sjálfum tillögumönnum, sem telja kostnaðinn mikinn, enda gerir tillagan ráð fyrir, að þangað til heimavistirnar komi til framkvæmda, skuli greiða nemendum, 50 að tölu, húsnæði, ljós og hita, og verður sú upphæð varla minni en 24 þús. kr. á ári.

Næstu myndina tekur hv. þm. Dala. á sig, þegar hann gerir ráð fyrir, að nemendum mentaskólans fækki niður í 100, en enginn gagnfræðaskóli komi í staðinn. Jeg trúi ekki, að hv. þm. Dala. sje alvara.

Þá tekur hann á sig þriðju myndina, er hann segir, að kennurum mentaskólans muni fækka um 12. Jeg spyr, eins og hv. þm. Barð. (HK): Hvað á að gera við þá, sem fyrir eru nú? Á að kasta þeim út á gaddinn? Jeg á bágt með að trúa, að hv. þm. Dala. sje orðinn svona mikill sparnaðarmaður. En af hverju segir hann alt þetta, þvert um hug sinn? Hann vill ekki þetta, og eitthvað hlýtur að liggja á bak við.

Jeg ætla að enda á því, að minna hv. þm. Dala. (BJ) á fræg orð, sem Snorri Sturluson leggur í munn Finni Árnasyni. Finnur segir við Þorberg, bróður sinn: „Ilt þykir mjer ofkvæni slíkt, að þora ekki fyrir konu sinni að halda einurð sinni.“ Og mjer þykir ilt, ef hv. þm. Dala., vegna mjög óeðlilegs bandalags, sem hann hefir gengið í í þessu máli, þorir ekki að halda einurð sinni fyrir þeim mönnum, sem honum eru fjarskyldastir um mentamálin.