14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 572 í C-deild Alþingistíðinda. (2545)

96. mál, hvalveiðar

Flm. (Ásgeir Ásgeirsson):

Viðvíkjandi fyrirspurn hv. þm. Str. (TrÞ) um það, hvort hrefnan skuli undanþegin, vil jeg benda til greinargerðar frv.

það er nú fram komið, að allar aðrar þjóðir eru komnar inn á þá braut, að veita beri sjerleyfi til hvalveiða. Kostir sjerleyfis eru margir. Ríkið hefir þá, eftir því sem því sýnist, öll skilyrði til þess að skipa málunum eftir því, sem viturlegast þykir. Það getur lagt skatt á atvinnurekstur og gróða, eftir því, er því þykir hæfa. En eins og hv. þm. N.-Ísf. (JAJ) sagði, þá er það nú fullsannað, að hvalir hafa engin áhrif til bóta á síldargöngur. Bjarni Sæmundsson og norskir fiskifræðingar halda þessu hinu sama fram. Enda munu nú flestir sjómenn horfnir frá þessari bábilju. Árið 1923 breyttu Norðmenn löggjöf sinni í það horf, sem hjer er farið fram á. Það er vitanlegt, að hvalur var á síðasta sumri veiddur frá Færeyjum í hafinu milli Færeyja og Íslands alla leið upp að Austur-Horni. „Michael Sars“ komst að þeirri niðurstöðu við rannsóknir í sumar sem leið, að hvergi í norðurhöfum væri hvalur meiri en í vestur af Íslandi. Til þess að vjer getum haft sama gagn af hvalveiðum og aðrir, er frv. fram komið. Jeg hygg, að frv. horfi til mikilla bóta frá því, sem nú er. Getur það orðið til þess, að fátæklingar í landinu fái góða og ódýra fæðu, eins og reynslan hefir orðið bæði í Noregi og Færeyjum, einstaklingar hagnist af veiðunum og ríkissjóður fái góðan hlut í tollum og sköttum.