01.04.1925
Neðri deild: 48. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í C-deild Alþingistíðinda. (2556)

96. mál, hvalveiðar

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vil aðeins þakka meirihl. hv. sjútvn. fyrir að hafa tekið til greina ummæli mín og hv. þm. N.-Ísf. (JAJ), um að undanskilja hrefnur friðun. Jeg er ekki sammála hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ). Hann veit, að þessi veiði er og hefir verið stunduð, þrátt fyrir skilning sumra á lögunum, sem ekki hefir orðið hinn opinberi skilningur. Það er og ekki rjett, að hrefna sje friðuð.