20.04.1925
Efri deild: 56. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í C-deild Alþingistíðinda. (2578)

96. mál, hvalveiðar

Frsm. meirihl. (Jóhann Jósefsson):

Það hefði sennilega verið rjettara, að jeg hefði tekið það fram í fyrri ræðu minni, að meirihl. nefndarinnar vildi láta samþykkja frv. með lítilsháttar breytingum. En þær voru svo sjálfsagðar, að mjer láðist að geta um þær. Skal aðeins minna á, að þær eru tilgreindar á þskj. 346. Hv. Nd. hafði sjest yfir þetta.

Hv. 2. þm. S.-M (IP) hefir minst á það, sem fyrir honum vakir í þessu máli, þennan ótta um það, að ef til vill verði menn víðsvegar út um landið á móti þessu frv. Hv. þm. (IP) gat um, að það væri álit manna á Austfjörðum, að hvölum hefði fjölgað síðan friðunarlögin gengu í gildi. Þetta má vel vera. En hjer er, eins og hv. þm. kannaðist við, aðeins um álit manna að ræða, og það hlýtur altaf að vera heldur lauslegt til að byggja á.

Þá mintist hv. þm. á, að vísindin væru ekki ábyggileg í þessu efni. Það má kanske til sanns vegar færa. En þegar um er að ræða annarsvegar lauslegt álit, en hinsvegar rannsóknir fleiri ára, þá getur enginn vafi leikið á, hvort meira á að meta.

Þá kom hv. þm. (IP) með yfirlýsingu, sem mjer þótti kynleg. Hann sagði, að frv. kæmi að öllum óvörum. Nú er samþingismaður hv. þm. (IP) einn af flytjendum frv., og auk hans einn af helstu samherjum hv. þm. (IP) í Framsóknarflokknum. Og þó lýsir hv. þm. yfir því, að þetta hafi komið að honum óvörum. Það er óneitanlega einkennilegt, að hv. þm. skuli berjast á móti máli, sem samþingismaður hans flytur, og auk þess eru sumir samflokksmenn hans í hv. Nd. helstu stuðningsmenn þess. Okkur Íhaldsmönnum í þessari hv. deild er einatt brugðið um það, að við sjeum ekki í samræmi við íhaldsmenn í hv. Nd. En þetta dæmi sýnir það, að við höfum ekki verið einir um þessháttar. Það getur alveg eins komið fyrir hjá öðrum hv. þm. og öðrum flokkum.

Hv. þm. (IP) vill vísa þessu máli til stjórnarinnar, og er það ánægjulegt, að heyra þá ósk fram borna af manni, sem er í andstöðu við stjórnina. Út af fyrir sig felli jeg mig fjarskalega vel við þessa ósk hv. þm. (IP); það er auðráðið af því, að hv. þm. treystir stjórninni vel í þessu máli, en á hinn bóginn er í frv. sjálfu ætlast til þess, að atvrh. veiti sjerleyfi og hafi úrskurðarvald um það; þar er stjórninni þegar treyst til að fara með þetta mál, svo að það getur alveg eins vel komið fram með frv. eins og með þeirri ósk, sem hv. 2. þm. S.-M. (IP) ljet í ljós, að málinu væri vísað til stjórnarinnar. En aftur er það ákaflega mikilsvert og ánægjulegt að heyra það frá manni úr andstöðuflokki stjórnarinnar, að hann vilji vísa máli, sem hann telur svo mikils varðandi fyrir alla landsmenn, til stjórnarinnar.

Hvað það snertir, að þetta mál hafi ekki verið rætt út um land og að óskir kjósenda liggi ekki fyrir í málinu, þá veit jeg satt að segja ekki, hvort það er hlutur, sem þurfi svo mjög að fárast yfir. Hv. þm. (IP) mintist á það, að þetta hefði verið mikið hitamál áður, sem það sjálfsagt hefir verið, og sje nú gengið út frá því, að svo yrði áfram, eins og öll ræða hv. þm. (IP) virtist benda á, yrði í mínum augum ástæðan fyrir því, að bera þetta undir kjósendur, ekki ríkari. Því að jeg tel ólíklegt, að þetta mál sjálft mundi vinna við það, það er, að það yrði betur og óhlutdrægar upplýst, þó að það væri gert að æsingamáli í kosningastappi út um alt landið, því að inn í það myndi svo oft spinnast hreppapólitík og eiginhagsmunir, sem ekki geta orðið til annars en að rugla hugmyndir manna um það, hvað rjett sje í málinu sjálfu. Jeg er því andstæður hv. þm. (IP) í því, að jeg álít, að þegar ekki er hægt að sanna neitt þessa trú, sem hv. þm. segir, að hjer sje um að ræða, eða hafi verið um að ræða, gegn því, að hvalir væri drepnir, þá verð jeg að segja, að málið mundi ekki hafa nema ilt af því að verða gert að æsingamáli.

þá veik hv. þm. (IP) að einu atriði í málinu, sem jeg í rauninni fór fram hjá í ræðu minni, sem sje, að aðrir væri farnir að taka frá okkur þessa veiði, og á meðan við meinuðum okkar eigin mönnum að drepa hvalina, væru aðrar þjóðir farnar að sækja þá heim að okkar bæjardyrum. Jeg vildi ekki staðhæfa neitt um þetta, af því að þær upplýsingar, sem jeg hefi fengið, eru ekki svo ljósar, að hægt sje að fullyrða neitt út af þeim. En jeg heyri, að hv. þm. (IP) hefir heyrt um það líka. En þá verð jeg að segja hv. þm. (IP) það, að það er ekkert því til fyrirstöðu, að útlendingar geti með flotstöðvum hagnýtt sjer hvalina hjer við land, hvort sem við bönnum okkar mönnum að drepa þá eða ekki. En hv. þm. (IP) vildi láta það bíða, að við slökuðum nokkuð á taumunum við okkar menn. Jeg sje nú ekki, að það sje rjettara hjá okkur að fara fyrst að leyfa Íslendingum að nota sjer hvalina við strendur landsins, þegar útlendingar eru farnir að draga þá til annara landa. Þessvegna finst mjer það ekki hættulegt, þó að stjórninni sje veitt heimild til að leyfa Íslendingum að setja upp hvalveiðastöðvar. Hv. þm. (IP) mintist á eitt atriði, sem sýnir það fyllilega, að ekki er hætt við, að stöðvar verði margar á næstunni; það var kostnaðurinn. Og það er víst alveg rjett, að bæði er kostnaðurinn mikill og atvinnan áhættusöm, eins og allur annar veiðiskapur, en það verður þá einmitt eðlilegur hemill á það, að það verði af mörgum mönnum óskað eftir þessu sjerleyfi.

Hvað snertir athugasemd hv. þm. (IP) um það, að þetta geti gefið ástæðu til leppmensku og að útlent fje kynni að geta slæðst inn í þessi fyrirtæki, þá sje jeg ekki, að það, út af fyrir sig, gefi neina ástæðu til þess að vera á móti því, að Íslendingar geti hagnýtt sjer þessa veiði. Það verður að vera með það eins og annað, sem íslenskir ríkisborgarar ætla sjer að starfrækja hjer, að stjórnin verður að sjá um það, að leppmenska geti ekki átt sjer stað. En þó að slík veiði væri rekin einhversstaðar frá Íslandi af Íslendingum sjálfum, með útlendu fje að einhverju leyti, af því að íslenskt fje skorti, þá get jeg ekki sagt, að mjer sje svo sárt um það, þótt fjeð fengist til þess einhversstaðar annarsstaðar að, ef fje væri ófáanlegt hjá innlendum lánsstofnunum. Þetta, með útlent fje og leppmensku, má ekki nota alstaðar sem grýlu, til þess að fæla menn frá að fylgja nauðsynjamálum.

Þá talaði hv. þm. (IP) um það, að stjórn Fiskifjelags Íslands hefði ekkert umboð frá hinum einstöku deildum Fiskifjelagsins til þess að leggja neitt til í þessu máli. Það skal jeg ekkert deila um við hv. þm. (IP); jeg býst ekki við, að stórn fjelagsins hafi aflað sjer þessa umboðs. En jeg tel, að hún muni hafa við hönd sjer þá sjerfróðu aðstoð og þau gögn, sem hægt er í þessu máli, og hygg jeg, að hún myndi litlu bættari fyrir það, þótt hún fengi já frá einni deild Fiskifjelagsins og nei frá annari, eftir því, hvernig talað væri fyrir þeim. Ef á að fara eftir nokkru, þá á að fara eftir þeirri niðurstöðu, sem sjerfræðingar hafa komist að, við að rannsaka málið í fleiri ár. Þegar á þingi árið 1885 var lagt fram frv. með ákvæðum um hvalveiðar, og þá er það þegar tekið fram í greinargerðinni fyrir frv., að þessi skoðun og almenningsálitið á skaðsemi hvalveiðanna komi ekki heim við það, sem áður hafi verið álitið, og þá er þess ennfremur getið, eftir skýrslu frá Hammer skipsforingja, en það var árið 1886, að hann hafi álitið, að það hefði ekki nein áhrif á síldargöngur, hvort hvalir væri friðaðir inni í fjörðum á Íslandi eða ekki. Með tilliti til reynslu undanfarinna ára er víst óhætt að gera ráð fyrir, að þessar andstæðu skoðanir á hvalveiðunum og áhrifum þeirra á fiskigöngur haldi enn um nokkurt skeið áfram að rekast á, og hvorutveggja skoðunin eigi sína öruggu talsmenn, eins og áður hefir verið.

Þótt jeg hefði haft, af pólitískum ástæðum, sjerstaka löngun til að fylgja till. hv. 2. þm. S.-M. (IP), þá finst mjer ekki, að þau rök hafi komið fram, hvorki í ræðu hv. þm. (IP) gegn frv. eða frá öðrum, sem geti fengið mig ofan af því, að fallast á gerðir hv. Nd. og hv. samþingismanns 2. þm. S.-M. og flokksbræðra hans í Nd. í því, að leyfa þessu máli að ganga fram.