14.04.1925
Neðri deild: 55. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 614 í C-deild Alþingistíðinda. (2588)
110. mál, aðflutningsbann á heyi
Magnús Jónsson:
Hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) hefir þegar sagt nær alt það, sem jeg vildi sagt hafa. Ef það er tilgangur þessa frv. að girða fyrir, að þessi illa veiki flytjist hingað, sem dýralæknar telja að geti átt sjer stað á þennan hátt, þá finst mjer, að lögin ættu heldur að vera í því formi, að þau væru heimildarlög til að banna innflutning á heyi frá þeim löndum eða landshlutum, sem að dómi dýralæknis mættu teljast varhugaverð. Hitt virðist hreinn óþarfi, að setja bannlög og leyfa aðeins undanþágur. Reynslan sýnir t. d., að sá heyinnflutningur, sem átt hefir sjer stað undanfarandi frá Noregi, hefir engar hættur haft í för með sjer. Jeg vil því benda væntanlegri hv. nefnd á þetta, hvort eigi sje rjettara að hafa þessi lög í heimildarlagaformi, heldur en hrein bannlög, eins og frv. er orðað.