09.05.1925
Neðri deild: 76. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (260)
1. mál, fjárlög 1926
Ingólfur Bjarnarson:
Jeg skal verða við þeim tilmælum hæstv. forseta að tefja ekki tíma þingsins með langri ræðu. En af því að háttv. frsm. vísaði til mín um að skýra tillögu fjvn. um lánsheimild fyrir Húsavíkurhrepp til þess að koma á vatnsleiðslu í kauptúninu, verð jeg að segja nokkur orð.
Eins og hv. deildarmenn muna, þá heimilaði síðasta þing ríkissjóðsábyrgð fyrir láni til þess að koma á vatnsleiðslu og holræsagerð á Húsavík. En nú hefir farið svo, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Húsavíkurhrepps, bæði við bankana hjer og víðar, að ekki hefir tekist að fá hagkvæmt lán, þrátt fyrir ríkissjóðsábyrgðina. Því er það nú, samkvæmt mjög ákveðnum tilmælum Húsavíkurhrepps, að þessu er snúið við þannig, að farið er fram á lánsheimild úr viðlagasjóði í stað ábyrgðarinnar, ef það mætti verða til þess, að málið kæmist í framkvæmd.
Nauðsyn þessa fyrirtækis var mjög ítarlega skýrð á síðasta þingi. Og til þess að eyða tímanum ekki um of, skal jeg láta vera að rifja það alt upp nú. Það er víst, að þetta mál er mikið velferðarmál fyrir kauptúnið, því að það miðar til að afstýra yfirvofandi taugaveikishættu. Þannig er ástatt norður þar, að taugaveiki hefir verið svo að segja landlæg þar síðasta mannsaldurinn, og telja þeir, sem rannsakað hafa faraldur þennan, að hann eigi rót sína að rekja til vatnsbólanna í þorpinu. Eftir skýrslum, sem lágu fyrir þinginu í fyrra, má sjá að síðan 1890 hafa verið skrásettir þar 90 taugaveikissjúklingar. Síðustu 5 árin eru þeir 60, eða að meðaltali 12 á ári. Af þessum 60 sjúklingum hafa 12 dáið. Þetta sýnir ljóslega, hver hætta vofir yfir þorpinu, og jafnframt, hve bráðnauðsynlegt það er fyrir þorpsbúa að fá vatnsleiðslu og holræsagerð í þorpið, því að það er álit landlæknis og annara, sem þetta mál hafa athugað, að með vatnsleiðslunni sje hægt að fyrirbyggja þessa hættu. Enda er það í samræmi við reynslu annara kauptúna í þessu efni.
Þetta hefir verið brennandi áhugamál þorpsbúa síðustu árin, en það hefir ekki tekist að koma því í framkvæmd, af því að fje hefir ekki verið fáanlegt. Og nú hefir enn mistekist að fá fjeð, þrátt fyrir ábyrgð ríkissjóðs.
Af greindum ástæðum hefir nú þessi leið verið farin, að fá ábyrgðinni breytt í lánsheimild úr viðlagasjóði, og vænti jeg, að hún mæti sömu velvild og ábyrgðarheimildin í fyrra. Að sjálfsögðu verður haldið áfram á þessu ári að reyna að fá lánið með ábyrgð ríkissjóðs, og er ekki óhugsanlegt, að það takist enn. En ef svo fer, að lánið fáist með ábyrgð ríkissjóðs, fellur sú lánsheimild, sem hjer um ræðir, vitanlega niður, þó hún verði samþykt.