07.05.1925
Neðri deild: 74. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 627 í C-deild Alþingistíðinda. (2606)
110. mál, aðflutningsbann á heyi
Tryggvi Þórhallsson:
Jeg get gjarnan sagt við þetta tækifæri, að batnandi manni er best að lifa. Afgreiðsla hv. landbn. á þessu máli er stórum betri nú en við 2. umr., ef hún þá fær staðist, þessi dagskrá. Hinsvegar mundi jeg óska þess, áð hæstv. atvrh. vildi tala dálítið skýrar um málið en hann gerði. Jeg fyrir mitt leyti mun geta sætt mig við dagskrána, ef hæstv. stjórn treystir sjer til þess að nota þessa lagaheimild þannig, að náist tilgangur okkar flm. frv., að fyrirbyggja til næsta þings þá sýkingarhættu, sem stafar af innflutningi heys. Mín afstaða til þessarar dagskrár er þá undir því komin, hvort hæstv. atvrh. (MG) telur sig hafa vald og vilja til þess að ráðstafa málinu þannig, að okkar tilgangi sje vel og tryggilega náð.