16.02.1925
Neðri deild: 8. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 642 í C-deild Alþingistíðinda. (2626)

41. mál, vegalög Borgrnes og Eyjafjarðarbrautir

Jón Sigurðsson:

Jeg mun ekki mæla mörg orð að þessu sinni, og stend ekki upp til að tala gegn þeim till., er hjer liggja fyrir. það er næsta eðlilegt, að þær eru fram komnar, og sumar sjálfsagðar, eins og vegamálum vorum er nú komið. Hinu vildi jeg skjóta til hv. samgmn., að íhuga rækilega, hvernig nú er komið vegamálunum. Því að mjer sýnist svo sem sumar sýslur hafi komið svo laglega ár sinni fyrir borð, að þær hafa enga sýsluvegi, allir aðalvegir þeirra orðnir að þjóðvegum, en aftur stynja aðrar sýslur undir þeirri byrði, sem sýsluvegir þeirra leggja á þær. Teldi jeg æskilegt, að hv. nefnd kynti sjer þessa hlið málsins betur en gert var á síðasta þingi. Jeg hafði ekki ætlað mjer að bera fram brtt. við vegalögin, en er jeg sje þetta frv., er hjer liggur fyrir, og aðrar breytingar, sem komnar eru fram í líka átt, mun jeg vart geta varist þess, að koma með brtt., þar sem ákveðnar óskir hafa borist um það frá kjördæmi mínu. En sem sagt, jeg teldi æskilegt, að hv. nefnd athugaði þá hlið málsins, sem jeg drap á.