05.03.1925
Neðri deild: 26. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 829 í C-deild Alþingistíðinda. (2691)

32. mál, varalögregla

Ásgeir Ásgeirsson:

Jeg stend ekki upp til þess að mótmæla hv. þm. Ak. Þess þarf ekki með. Við áttum nýlega í orðasennu um tóbakseinkasöluna; hann nefndi Kaifas og jeg nefndi Júdas, og nú nefndi hann Kain. Mætti halda svo lengi áfram, Heródes, Pílatus o. fl., eru enn ótaldir! En jeg skal hætta þeim leik. Skapsmunir þingmannsins (BL) mega ekki við því. Jeg mun ekki heldur leggja fram vottorð hæstv. forsrh. um þinglega framkomu mína. Veit, að hann muni á þingi eða annarsstaðar, sem flokksbróðir, draga úr ótta þeim, sem gripið hefir hv. þm. Ak., og nærri stappar geðveiklun. Mjer leið ekki vel, meðan á ræðu hv. þm. stóð; ekki vegna þess, að jeg reiddist mín vegna, heldur af því, að mjer til þessa hefir verið persónulega vel við þennan mann, þrátt fyrir tortrygni hans og geðofsa.

Jeg bað um orðið til þess að leiðrjetta mishermi hjá hæstv. forsrh. og hv. þm. Dala (BJ). Hæstv. forsrh. hafði eftir mjer, að jeg teldi hættulegt og erfitt að byggja á hervaldi annara þjóða. Jeg vil ekki kalla þetta útúrsnúning nje rangfærslur; það getur eins vel stafað af misskilningi. Jeg hjelt því fram, að lega landsins í nágrenni við England og Norðurlandaþjóðirnar væri mikil trygging fyrir okkar litla ríki, og geri það að verkum, að við þurfum ekki að óttast sjórán. Hinar miklu verslunarþjóðir hafa á öllum öldum gert sjer far um að friða höfin, og smáríkin hafa notið þess, að búa í skjóli þeirra.

Hinar síðari aldir hefir breska ríkið verið nokkurskonar lögregla á hafinu, og tekist að lokum á síðustu öld að alfriða flest höf heimsins. Þetta hefir auðvitað hina mestu þýðingu fyrir oss. Vjer þurfum ekki að halda uppi landvörnum, nema vegna fiskiveiða í landhelgi, — og kemur það sjer, þar sem vjer erum fámenn þjóð. Þetta megum vjer vel sjá sjálfir, og er það oss til engrar vanvirðu. Mig undrar það stórum, að nokkur skuli hafa sig til að andmæla þessari staðreynd. Getur það ekki komið til af öðru en „þjóðlegum“ hjegómaskap eða tilhneiging til að andmæla öllu, sem andstæðingurinn segir.

Nú sagði háttv. þm. Dala. (BJ) í ræðu sinni, að varalögregla ætti ekki að vera til að verjast innlendum árásum, og erum við báðir sammála um, að þess sje ekki þörf. En hann virtist telja slíka lögreglu, sem þá væri rjettara að nefna hjer, nauðsynlega til varnar gegn erlendum árásum og yfirgangi útlendra manna.

Máske hv. þm. Dala. álíti oss ekki geta verið fullvalda ríki, þrátt fyrir krossana, sendiherra o. fl., nema við hefjum stríð líka? Nú hefir hann nýlega lýst því fyrir oss, hvernig einn lögreglustjóri, sem nú er fyrir skömmu látinn (Halldór Daníelsson), rjeðst gegn hóp af druknum útlendingum og stökti þeim á flótta, einn og óvopnaður, með því valdi, sem ávalt er drýgst — hinum andlega þrótti og myndugleika, og er engin sú gáfa, er lögreglustjórum kemur betur að vera gæddir en einmitt þessi.

Þá vil jeg ljúka þessum orðum mínum með örfáum athugasemdum, sem jeg ætla að beina til hæstv. dómsmálaráðherra (JM). Það, sem best verður gert í þeim málum, er frv. snertir, er það, að sjá um, að því lögregluvaldi, sem þegar er til í landinu, verði beitt sem best og notað til fullnustu. Fyrir það yrði þjóð vor hæstv. dómsmálaráðherra þakklátari eftir en áður. Yfir því hefir allmjög verið kvartað, einkum utan af landi, að löggæslan hafi versnað hin síðari árin; hefði henni hrakað eftir það, að amtmannsembættin voru lögð niður, en þó stórum versnað hin allra síðustu ár. Ef hæstv. dómsmálaráðherra megnar að reisa við álit lögregluvaldsins og vekja traust almennings til löghlýðni og árvekni þeirrar lögreglu, sem nú þegar er til í landinu, þá myndi hann þar með vinna betra verk en þó hann með fortölum sínum gæti fengið þingið til að setja þúsund manna ríkislögreglu — enda væri það altaf ilt verk — og hljóta alþjóðarþökk að launum.