05.05.1925
Neðri deild: 72. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 872 í C-deild Alþingistíðinda. (2708)

32. mál, varalögregla

Jón Baldvinsson:

Það er ekki hægt að komast hjá því, að tengja saman 1. umr. málsins og hinar, því að þegar talað er um það, hvernig á að orða frv. og hvernig það á að vera, hlýtur maður að tala um það alment. Og svo eru hjer einnig til umræðu tvö nál. En það virðist nú svo sem hæstv. stjórn vilji helst, að ekkert sje um málið rætt. Virðist helst, að hún vilji hafa „þegjandi þing“, eins og í fyrra, er hún vildi láta fella niður prentun þingtíðindanna.

Það er annars óskiljanlegt um hæstv. forsrh. (JM), er kemur hingað í deildina endrum og eins og drepur sjer niður eins og kría á stein, að hann skuli leyfa sjer að setja ofan í við þingmenn, þótt þeir taki til máls um hin mestu stórmál á þinginu, eða að hann sje að snupra þá fyrir það, að þeir tali lengur en honum sjálfum líkar, eða á annan hátt en honum er geðfelt.

Nál. minnihl. er ekki annað en endurtekning á greinargerðinni fyrir stjórnarfrv., en þó fer það í bág við það, sem hæstv. forsrh. (JM) hefir sagt um málið. Það hlýtur að koma málinu mikið við, sjerstaklega kostnaðarhlið þess, hvernig frv. er orðað. Í frv. stjórnarinnar er þetta alt svo laust og óbundið, að það hefði vel mátt teygja útgjöldin upp í 21/2 miljón kr. En þótt stjórnin hafi síðan dregið saman seglin, þá eru menn ekki við það bundnir, enda eru öll ummæli um það svo óljós, að ekkert er á þeim byggjandi. Í nál. minnihl. segir líka, að það sje ekki hægt að. gera nákvæma kostnaðaráætlun. Þar er þó fullyrt, og hv. þm. V.-Sk. (JK) gerði það líka, að kostnaðurinn muni ekki fara fram úr 13800 kr. (JK: Stofnkostnaður.) það er nú svo. Nál. gerir ráð fyrir 5000 kr. til foringjans, og á það máske að teljast stofnkostnaður í viðbót við þessi 10–12 þús. kr., sem á undan eru. En þetta er alt á huldu, eins og mönnum hjer í þinginu sje um að gera að stikla yfir þá hlið málsins.

Þá er stungið upp á því í nál., að þóknun til forstöðumanns eða foringja skuli vera á að giska 200 kr. á mánuði. Þar er ekki heldur mikið að halda sjer að. Jeg býst nú við, að hann mundi þurfa dálítið meira. Jeg býst við því, að hann muni þurfa að æfa liðið. Og ef nú ætti að fá hingað erlendan liðsforingja til þess að koma skipulagi á fyrst, þá hygg jeg, að 5000 kr. muni lítið nægja handa slíkum manni, og er þetta hlægilega lítil upphæð. (SigurjJ: En 2 miljónirnar?) Vildi ekki hv. þm. (SigurjJ) setja upp gleraugu og líta á frv. stjórnarinnar, og vita, hvort hann getur ekki fengið þann kostnað út úr því, ef fara ætti eftir því út í æsar?

Minnihl. allshn. hefir komið með þá brtt., að hjer í Reykjavík skuli vera 100 manna sveit, en 10 manna annarsstaðar, svo sem á Siglufirði og Ísafirði. En hversvegna eru ekki hinir kaupstaðirnir nefndir, svo sem Hafnarfjörður, Seyðisfjörður, Akureyri og Vestmannaeyjar? Mundi það vera af því, að þingmenn þessara kjördæma, sem allir eru í Íhaldsflokknum, hafi bannað það? Eða munu þeir hafa tekið Ísafjörð vegna þess, að þeir líta engum vinaraugum þangað?

Um kostnaðinn við búning lögregluliðsins eru hv. minnihl. nefndarmenn í mótsögn við hæstv. forsrh. (JM). En jeg býst við, að það sje hann, sem á að framkvæma lögin, ef hann verður þá við völd. Í ræðu sinni 26. febrúar sagði hann, að varalögreglumennirnir ættu að vera að öllu svo útbúnir sem hinir föstu lögreglumenn bæjarins. Ennfremur segir hann um kostnaðinn við þetta, að hann muni verða um 20–25 þús. kr., og talar hann þar um jafnmarga menn eins og minnihl. allshn. Hann þykist þó ekki geta fullyrt neitt um það, og er þetta, eins og jeg sagði áðan, alt saman ágiskanir út í loftið, sem ekki er hægt að henda reiður á. Þessvegna álít jeg, að andmælendur frv. þessa hafi fullan rjett til þess að tala um málið alment, úr því að ekki er hægt að pína út úr hinum ákveðnar tölur um kostnaðinn.

Hitt er víst, að kostnaðurinn verður miklu meiri en þeir segja, eða vilja vera láta. Ber það og vel saman við virkileikann. Hjer í bæ er nú 15 manna lögregla starfandi alt árið. Eftir fjárhagsáætlun Reykjavíkurbæjar 1925 er kostnaður við lögregluna talinn kr. 71.536. En svo kemur þar að auki fatnaður og ýmislegt annað, og er það áætlað 17 þús. kr. Er þá fjarri sanni, að áætla 100 þús. kr. til 100 manna sveitar, sem hefir launaðan forstjóra eða hershöfðingja, árlega þóknun handa æfingamönnum og eitthvað handa undirliðsforingjum?

Ef við nú tökum slökkvilið Reykjavíkur, þá er kostnaðurinn þar heldur ekki svo lítill, eða um 36 þús. kr. til hinna 9 föstu slökkviliðsmanna. Svo er 50 manna sveit þar að auki og hún fær 8000 kr. Þetta verða samtals 44 þús. kr. Jeg tek þetta aðeins sem dæmi. Það getur vel verið, að kostnaður við varalögregluna verði ekki meiri en 100 þús. kr. En maður veit aldrei upp á hverju Íhaldsstjórnin kann að finna. Það gæti vel verið, að hún, fyrir tildursakir, fyndi upp á því að raða þeim, þessum fallega búnu hermönnum, fyrir framan stjórnarráðið, í hvert sinn er ráðherrarnir koma þangað eða fara þaðan. Og þótt kaup þessara manna yrði ekki meira en 6 kr. á klukkustund, og í það er auðvitað ekki horfandi, þá mundi það samt draga sig saman. Og ef háttsettur útlendingur kemur hingað, þá mundi sjálfsagt að hafa „hersýningu“, til þess að sýna veldi og makt stjórnarinnar!

Það er, sem sagt, ekki fyrirsjáanlegt, hvað kostnaðurinn muni verða mikill, en mikill verður hann. Og það, sem jeg nú hefi talað um, er aðeins aukageta.

Þá hefir nokkuð verið um það rætt, hvort þörf sje á að samþ. frv. og í hvaða skyni það er fram borið. Það þýðir ekkert fyrir hæstv. forsrh. (JM) eða hv. þm. V.-Sk. (JK) að fara í kringum það, eins og köttur í kringum heitt soð, að frv. þetta er borið fram í ákveðnu skyni, enda kom hæstv. forsrh. (JM) með dæmi um það við 1. umr. málsins, hvenær þessarar varalögreglu væri þörf, og sagði, að það væri þá, er verkamannadeilur yrðu. Hv. frsm. minnihl. (JK), sem hefir verið fulltrúi lögreglustjóra hjer, hefir ekki mótmælt þessu, en á hinn bóginn hefir hann ásakað menn fyrir það, að hafa minst á, að þessi varalögregla sje stofnuð gegn verkamönnum. Og þó veit hann, að málið er þannig flutt og varið í blöðum Íhaldsins. En þótt hv. þm. V.-Sk. (JK) segi, að það sje vantraust á Alþýðuflokknum, að ætla það, að hann verði fyrir barðinu á varalögreglunni, þá er því til að svara, að það er ekki Alþýðuflokkurinn, sem búið hefir út frv. þetta, sem er beint gegn verkamönnum, samkvæmt játningu hæstv. stjórnar.

það er svo með útbúning þessarar lögreglu, að stjórnin á sjálf að ákveða, hvaða tæki hún á að nota, og það á að vera algerlega á valdi stjórnarinnar, og þó að hæstv. ráðherra (JM) segi, að hún eigi að vera búin eins og lögregluþjónar á Norðurlöndum, og hv. þm. V.-Sk. (JK) segi, að hún eigi að hafa kylfur, þá er það dálítið óákveðið, og mótsögn á milli hv. frsm. minnihl. (JK) og hæstv. ráðherra (JM), því að hæstv. forsrh. hefir altaf haldið sjer við það, að þeir eigi að hafa sama útbúnað og lögregluþjónar annarsstaðar á Norðurlöndum. En nú er það t. d. kunnugt, að í Svíþjóð eru lögregluþjónar útbúnir með sverð og pistólur, svo að menn sjá af þessu, að það er alls ekkert ákveðið um það, hvaða tæki þessi varalögregla á að hafa, og það eru miklu meiri líkur til, að farið verði í þá áttina, sem hæstv. forsrh. (JM) talar um, heldur en þá, sem hv. þm. V.-Sk. (JK) í sakleysi sínu heldur fram.

Þá hefir verið gerð allákveðin breyting á frv., sú, að nú er aðeins miðað við 100 manna sveit í Reykjavík, í stað þess, að í stjórnarfrv. er gert ráð fyrir, að þeir karlmenn, sem eru fullra 20 ára að aldri, en ekki yfir fimtugt, sjeu skyldir að ganga í liðið. Þetta er allmikil breyting, og ef miðað er við alla kaupstaðina, þá verða það þó ekki nema 150 —160 manns. En jeg álít þetta þó hreint ekkert betra, heldur jafnvel skaðlegra, því að með því að tína til 100 manns, sem stjórnin fyrst velur sjer foringja fyrir — og hann velur hún auðvitað úr íhaldsherbúðunum — og síðan velur hann þessa menn, náttúrlega með ráði stjórnarinnar, og auðvitað verður þannig í málið farið, að hann og stjórnin velja þá eina menn, sem full vissa er fyrir, að sjeu henni „pólitískt“ hollir. Og það er enginn vafi á því, að með þessu gæti íhaldsstjórnin komið 100 af sínum bestu „agitatorum“ á föst laun, og jeg efast ekki um, að húu muni gera það, þegar það er svo beinlínis lagt upp í hendurnar á henni. (Atvrh. MG: Margur ætlar mann af sjer.) Jeg hefi ekki farið fram á það, að skipa 100 manna flokk til þess að vera „agitatora“ fyrir jafnaðarmannaflokkinn.

það hefir nú verið sagt svo mikið um þetta mál, bæði af hv. þm. V.-Sk. (JK) og hæstv. forsrh. (JM), sem hefir farið þeim orðum um það, að þessi varalögregla yrði að vera til taks, því að ef hún er ekki altaf til taks, þá er hún þýðingarlaus, og þessvegna væri það einnig þýðingarlaust, að skipa sjómönnum í varalögregluna, þeir væri kanske á togurum á vetrum, en færi svo kanske í síld á sumrum eða austur á Austfirði. þeir yrði því ekki til taks á sumrin, til þess að skakka óeirðir, eða bæla niður uppreistir, eða hvað það nú er, sem íhaldsliðið hugsar sjer. Það er því eðlilega óhugsandi, að teknir yrði aðrir menn en þeir, sem hjer væri staddir árið um kring. Það yrði þá heldur ekki verkamenn, því að þeir fara til verstöðva og stundum í kaupavinnu. Það er því gefið, að það yrðu helst verslunarmenn, sem valdir yrðu, og þá yrði einkanlega valið með tilliti til þess, að þeir væri hliðhollir Íhaldinu. Þá hefir íhaldsstjórnin fengið sjer þarna lífvörð, sæmilega vel vopnaðan, og þá getur vel verið, að henni takist að halda sjer talsvert lengur uppi með þessu. Nei, jeg álít, að þetta sje jafnvel skaðlegra heldur en það, sem ákveðið er í stjfrv., að það sje farið þannig að, að velja þessa lögreglu, heldur en að valið sje af handhófi, ef svo má að orði komast, því að náttúrlega mundi íhaldsstjórnin fara alveg eins að, þótt stjfrv. yrði samþ. En það er þó ekki alveg eins greinilega bent til þessarar aðferðar í því, eins og í brtt. — Þá er þessi 10 manna sveit í kaupstöðunum. Auðvitað yrðu það að vera menn, sem altaf væri þar til taks, það yrði sjálfsagt að launa þá, og það svo riflega, að það gæti bætt þeim upp þá atvinnu, sem þeir gæti mist við það, að mega ekki fara burt og leita hennar annarsstaðar. Það yrði að bæta þeim það upp, með því að láta þá hafa svo riflega þóknun, að það yrði ekki fjarri sanni, sem hv. frsm. meirihl. (BSt) stakk upp á, að það yrðu um 1000 kr. á mann.

Eins og þetta mál er í pottinn búið, eins og það alt er hugsað hjá stjórninni og hún lýsti því í upphafi, þá ímynda jeg mjer helst, að það fengist enginn almennilegur maður til að ganga í þessa lögreglu, og að hún yrði að velja úr sínu nánasta liði til þess.

Jeg þykist nú hafa sýnt fram á það, að þær till., sem hv. minnihl. nefndarinnar hefir komið fram með, eru ekki að neinu leyti til bóta á frv., heldur miklu fremur til hins verra, og hvergi er sagt í nál. minnihl., ræðu frsm. minnihl. (JK) eða brtt. minnihl. neitt, sem geri nokkrar ákveðnar takmarkanir gagnvart kostnaði. Það er tvent í frv., sem er ákveðið, að það geti ekki orðið nema 100 manna sveit í Reykjavík, og svo að ríkissjóður eigi að borga brúsann. Alt þar í milli er svo óákveðið sem mest má verða.

Jeg ætla ekki að fara út í hin ýmsu ummæli hv. frsm. minnihl. (JK). Það mun hv. frsm. meirihl. (BSt) gera, ef honum þykir þörf á. En jeg vildi víkja að einu atriði, sem allir segjast vera sammála um, og eru það auðvitað. Það er það, sem hv. frsm. meirihl. (BSt) rjettilega sagði, að allir væri sammála um, það, að halda uppi lögum og rjetti í landinu. Það vilja allir, en það er aðeins þetta, að það verði ekki gert af hlutdrægni, að einum verði leyft það, sem öðrum er hegnt fyrir, og að fylgismönnum stjórnarinnar verði ekki látið haldast uppi allskonar lagabrot og athugavert framferði, sem öðrum er ekki leyft, og að ekki verði gengið á sjerstakan flokk manna, því að með þessu frv. hefir stjórnin algerlega beinst að sjómönnum og verkamönnum í landinu. Það er helst á henni að heyra, að þetta sje gert til þess að halda þessum stjettum niðri. Það er hvergi hægt að fá aðrar ástæður, og það er einmitt þetta, sem hlýtur að gera þetta mál að því stórmáli, sem það nú er orðið, auk þess sem hjer er um algerlega stefnubreyting í löggjöfinni að ræða. Og það er algerlega óverjandi að ráða því til lykta, án þess að bera það undir þjóðaratkvæði, því að það er fullkomin hervaldsstefna, sem stjórnin hjer hneigist að, og því álít jeg það algerlega óviðeigandi, að ráða því til lykta, án þess að þjóðin fái að segja álit sitt um það. Það er jafnvel minna um það mál vert, sem var hjer á döfinni fyr á árum, þegnskylduvinnuna; en það þótti þó ekki rjett, að ráða því máli til lykta, án þess að bera það undir þjóðaratkvæði, og þá var það, eins og kunnugt er, steindrepið. En úr því að mönnum þótti svo mikils um það vert, þá sje jeg ekki betur, ef þessu máli verður haldið áfram, en að það sje sjálfsögð skylda að vísa því til almennrar atkvæðagreiðslu, og það er það, sem stjórnin hefði átt að gera, þegar hún kom með þetta frv. Hún hefði átt að segja, að hún vildi gjarnan fá lögregluna aukna, leggja svo þetta frv. fyrir þingið og láta þess getið um leið, að hún teldi rjett, að bera það síðan undir þjóðaratkvæði. Það hefði verið skynsamlegt, en ekki þessi aðferð, að ætla sjer með flokksofbeldi að þrengja því nú í gegnum þingið.