14.03.1925
Neðri deild: 33. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í C-deild Alþingistíðinda. (2713)

97. mál, ríkisborgararéttur

Klemens Jónsson:

Hæstv. forsrh. gat þess, að fleiri umsóknir hefðu komið fram um ríkisborgararjett en þær, sem í frv. eru nefndar, en ekki verið teknar til greina, vegna óvissu um búsetu umsækjenda. En á þá að leggja aðaláhersluna á búsetuna eina? Mjer finst, að ennfremur ætti það aðallega að koma til greina, hvort viðkomandi maður getur talað íslenska tungu sæmilega. Við höfum enn litla „praxis“ í þessum málum, aðeins örfáir menn hafa fengið þessi rjettindi, og þeir kunna víst íslenska tungu. Í Danmörku er þess altaf getið, þegar svona mál eru lögð fyrir þingið, hvort viðkomandi kann dönsku, og það er gert að skilyrði þar, að hann kunni tunguna nokkurnvegin. Vildi jeg, að þetta yrði einnig gert að skilyrði hjer.

Jeg vil því beina þessu til allsherjarnefndar, með þeirri ósk, að hún athugi það vel, og vonast jeg til þess, að hún verði sammála um það, að aðalskilningur laganna eigi að vera sá, að veiting ríkisborgararjettar sje bundinn því skilyrði, að menn kunni tungu landsins.