27.03.1925
Efri deild: 40. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 912 í C-deild Alþingistíðinda. (2746)

18. mál, fjöldi kenslustunda fastra kennara við ríkisskólana

Sigurður Eggerz:

Jeg ætla aðeins að gera nokkrar almennar athugasemdir, enda hefir málið þegar verið mikið rætt. Það, sem fyrir mjer er þungamiðjan, er það, að laun kennara virðast vera þannig, að ekki sje rjettlátt að taka af þeim aukavinnuna. Væru laun þeirra aftur á móti bætt, þá myndi jeg ekki leggjast á móti því, að heimtuð yrði af þeim nokkru meiri vinna. Annars er á það að lita, að kenslustörf eru mjög lýjandi, og því er vafasamt, hve langt megi fara í því að ofþyngja kennurunum með mikilli vinnu. Það er hætt við því, að þeir þreytist um of og geti ekki haldið því fjöri og lifi í kenslunni, sem svo nauðsynlegt er til þess að halda eftirtekt nemendanna vakandi. Og jeg þykist fullvis um það, að sumir kennarar leggja á sig alt of mikla aukavinnu, en meðan föst laun þeirra eru slík, að þeir geta ekki framfleytt fjölskyldu sinni af þeim, þá er erfitt að meina þeim það. Neyðin rekur þá til að aflá sjer meiri vinnu. Jeg þekki vel ýmsa af þessum kennurum, og jeg veit, að þeir eru dauðþreyttir á kvöldin, þegar dagsverkinu er loksins lokið.

Nú er það svo, að kennarastörfin eru af flestum álitin einhver þýðingarmestu störfin í hverju þjóðfjelagi, og það er ekki lítið undir þeim komið, hvernig æskulýðurinn reynist. Jeg held, að skilningurinn á þessu sje ekki nógu djúpur í hv. deild. En jeg vil fyrir mitt leyti láta sjást í þingtíðindunum, að jeg hefi þó skilið aðstöðu þessara manna, sem svo oft hafa orðið út undan í þjóðfjelaginu. En það gleður mig, að hæstv. stjórn virðist ekki leggja mikla áherslu á frv., og vænti jeg því, að hv. deild sjái sjer fært að stöðva það. — Hinsvegar gæti þetta komið til athugunar, ef launakjör kennaranna væru bætt um leið.