02.04.1925
Efri deild: 45. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 925 í C-deild Alþingistíðinda. (2760)
18. mál, fjöldi kenslustunda fastra kennara við ríkisskólana
Einar Árnason:
Jeg var hjer ekki við, þegar umræðan byrjaði, og heyrði því ekki það, sem háttv. þm. Seyðf. (JóhJóh) mælti fyrir brtt. sinni. En jeg verð að segja, að mjer er það óljúft, að spyrða saman við þetta mál væntanlegri breytingu á launalögunum. Jeg ljet það í ljós við 2. umr. þessa máls, að jeg teldi það ósanngjarnt gagnvart kennurum, að hækka vinnutíma þeirra, ef þeir hefðu gengið út frá því í upphafi, að kensluslundafjöldi sá, sem þeir nú hafa, væri fastákveðinn. Jeg skildi hæstv. forsrh. svo, um daginn, að hann gengi út frá því, að allir kennarar, sem nú væru í embættum, væru undanþegnir ákvæðum þessa frv., þó það yrði að lögum, og það væru aðeins nýir kennarar, sein yrðu að gangast undir þessi lög. Annars tók hæstv. forsrh. það fram, að það væri á hverjum tíma á valdi kenslumálaráðherra að skipa þessu eins og honum sýndist, og jeg verð að vera honum sammála í því, að það er enganvegin ósanngjarnt, þótt vinnutími kennara verði sem svarar 3–4 stundum lengri á viku en nú gerist. Tel líka sjálfsagt, að þeirri reglu verði komið á, jafnótt og nýir kennarar taka við af þeim ekki, sem nú eru. Jeg get ekki annað sjeð, en að fullfrískir menn ættu að geta leyst þessa auknu vinnu af hendi, án þess að ofþjaka sig. En væru einhverjir kennarar settir í embætti, sem væru heilsu sinnar vegna miður færir til að vinna jafnlengi daglega og hjer er ákveðið, þá ætti stjórnin að geta tekið tillit til þess og sett sjerstakar reglur um það. (Forsrh. JM: Það er ávalt tekið fult tillit til þessa.) Getur verið. Þó hygg jeg, að þetta væri síður hægt, ef þessi vinnutími væri lögbundinn. En þar sem mjer skildist, að hæstv. kenslumálaráðh. (JM) væri ekki kappsmál, að ákvæði frv. næðu til þeirra kennara, sem nú eru í embættum, en við hinsvegar erum sammála um það, að þessi lenging vinnutímans er engin ofætlun ungum mönnum og fullfrískum, þá þykir mjer rjett, samkvæmt því, sem jeg nú hefi tekið fram, að bera fram svofelda rökstudda dagskrá, sem jeg vil leyfa mjer að afhenda hæstv. forseta:
Með því að kenslumálaráðherra getur sett reglur um fjölda kenslustunda fastra kennara við ríkisskólana, án íhlutunar löggjafarvaldsins, telur deildin ekki þörf á að afgreiða þetta frumvarp, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.