11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í B-deild Alþingistíðinda. (277)
1. mál, fjárlög 1926
Forseti (BSv):
Mjer hefir borist skrifleg brtt. við brtt. á þskj. 527, sem verður þskj. 532. Báðar þessar till. eru of seint fram komnar og auk þess er önnur skrifleg; þarf því afbrigða til þess að þær komist að, og mun jeg leita afbrigða um báðar till. í einu.