11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (280)

1. mál, fjárlög 1926

Forseti (BSv):

Það hljóta að vera einhver takmörk fyrir því, hvað lengi dugir að demba inn skriflegum brtt. (ÁÁ: Það hefði þá ekki átt að byrja á því), en auðvitað hefi jeg ekkert á móti því að taka á móti breytingartillögum eftir því sem þingsköp leyfa eða hv. deildarmönnum þóknast að veita leyfi til afbrigða um, að fram megi koma.