28.02.1925
Neðri deild: 22. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 972 í C-deild Alþingistíðinda. (2810)
37. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði
Ágúst Flygenring:
Jeg hefi hjer lítið að segja, umfram það, að þakka hæstv. allshn. fyrir meðferðina á máli þessu, og tillögur hennar. Nefndin telur sem sje, eins og jeg, að það sje sanngjörn og rjettmæt krafa, að þetta frv. verði samþykt, í samræmi við samþyktir síðasta þings, að því er snertir Reykjavík.
Hv. frsm. meirihl. (JBald) skýrði þetta mál svo vel í framsöguræðu sinni, að jeg sje enga þörf á að endurtaka neitt af því. Hann staðfesti það, sem stendur í nál., að það er alls ekki meiningin með ákvæðum frv. um útsvarsskyldu, að þau nái til manna á skipum, sem ekki eru skrásett í Hafnarfirði, nema að því er við kemur hinum útlendu leiguskipum, er þaðan ganga. Það hefir ekki verið og mun ekki verða venja, nema gagngerð breyting verði gerð á sveitarstjórnarlögunum, að leggja útsvar á innlend skip, sem gerð eru út í Hafnarfirði um styttri tíma en 3 mánuði, og ekki eru þar skrásett þremur mánuðum venjulega slept. Aftur hefir það verið talið heimilt og rjett, að leggja útsvar á skip, sem ganga þaðan svo að segja að staðaldri um lengri tíma, t. d. 5–6 mánuði ársins, og að fólk á slíkum skipum ætti að leggja nokkuð af mörkum, eigi síður en fólk á þeim skipum, sem þar eiga lögheimili, virðist sanngjarnt.
Brtt. hv. 1. þm. Árn. (MT) gengur út á það, að undanskilja innlenda menn, aðra en þá, sem búsettir eru í Hafnarfirði, þeirri útsvarsskyldu, sem í frv. felst. En það er óviðeigandi að hafa slíkt í lögum, og órjettlátt gagnvart öllu þessu, sem hjer er farið fram á. Það er vitanlegt, að skip þau, sem hjer er einkum átt við, eru gerð út undir ensku flaggi og ekki unt að ná útsvari af öðru skipsfólki þar en Íslendingum. Það ei líka fátt af enskum mönnum á skipum þessum, svona 4–5 menn, og skift um þá eftir 1–2 mánuði. Enda er ekki rjett að gera þann mun á mönnum á þessum skipum og hinum, sem eru á skipum þeim, sem lögskráð eru í Hafnarfirði. Hinsvegar er nauðsynlegt að gera þessa breytingu, ef ekki á að haldast misrjetti milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Virðist alveg sjálfsagt, að sami rjettur verði lögboðinn í báðum þessum kaupstöðum. Hvað það snertir, að órjettlátt sje að gera þessa breytingu, þ. e. a. s., að leggja útsvar á sjómenn úr öðrum hjeruðum, fremur en þá, sem fá vinnu í landi, þá skal jeg benda á dæmi af tveimur mönnum. Annar er ráðinn í landvinnu til þriggja mánaða og fær 325 kr. á mánuði, eða 975 kr. í alt. Útgjöld hans á þessum tíma eru ca. 300 kr., nefnil. fæði, húsnæði o. fl. Af þessu kaupi ber honum að greiða útsvar. Hinn maðurinn er úr sömu sveit, en á skipi, sem haldið er úti frá sama stað, í 3 mánuði líka, og sje hann ekki óheppinn, er óhætt að áætla tekjur hans a. m. k. hálfu meiri en hins. Jeg sje ekki, hvaða rjettlæti er í því, að þessi síðartaldi maður sje skattfrjáls, þar sem hinn er skattskyldur, þó tekjur hans sjeu minni. Það verður ekki hjá því komist að játa það, að sú regla, að lögheimilið eitt helgi útsvarsskylduna, sje ósanngjörn. Þegar menn fara í önnur hjeruð að leita sjer atvinnu, þá er ekki nema sanngjarnt, að þeir greiði útsvar þar, sem þeir njóta góðrar atvinnu. Jeg hygg, að með tímanum verði sú stefna ofan á, að skifta útsvarinu á milli þeirra staða, sem maðurinn nýtur atvinnunnar, og lögheimilis, ef það er annarsstaðar. Og ef frv. þetta verður samþ., þá er ætlast til, að ekki verði tekinn nema nokkur hluti af útsvarinu, því sem hæfilegt er, að viðkomandi maður beri, þar sem hann nýtur atvinnunnar. Hjer, með þessu frv., er alls ekki verið að stofna til þess, sem telja mætti rangt, heldur er verið að draga úr því, sem er bersýnilega vitlaust og ranglátt í gjaldskyldunni.
Og úr því að stærsti kaupstaður landsins hefir nú fengið rjettarbót í þessu efni, þá er sjálfsagt, að sá kaupstaðurinn, sem næst liggur, fái samskonar rjettarbót. Mun jeg svo ekki fjölyrða um þetta meira. Jeg vona, að hv. þdm. sjái, að þetta er sanngjarnt ákvæði, sem frv. fer fram á, og í samræmi við gildandi lög um bæjargjöld í Reykjavík.