28.02.1925
Neðri deild: 22. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 994 í C-deild Alþingistíðinda. (2820)
37. mál, bæjarstjórn í Hafnarfirði
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg vil aðeins segja hv. 2. þm. Reykv. (JBald) það, að það geta ekki talist mótmæli gegn frv. mínu, þótt útsvar sje svo lágt, að ekki borgi sig að reka rjettar síns til að fá það lækkað. Út frá sama hugsunarhætti mætti leiða það, að afnema ætti alla dómstóla, vegna þess, að sumar kröfur væru of lágar til þess, að það borgaði sig að fá dóm um þær.