11.05.1925
Neðri deild: 77. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1115 í B-deild Alþingistíðinda. (283)

1. mál, fjárlög 1926

Fjármálaráðherra (JÞ):

Jeg vildi leyfa mjer að leiða athygli hv. deildar að því, að það er ekki unt að úthluta styrk þessum eftir brtt. hv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) eftir þeirri reglu, sem greinir í aðaltill. á þskj. 527, það er að segja þeirri reglu frá nokkrum hluta fjhn., sem var feld hjer í deildinni við umræðurnar um dýrtíðaruppbót. Og það er því síður hægt að úthluta þessum 20 þús. kr. eftir þeirri reglu, ef á að bæta við kennurum eða öðrum, sem ekki voru þar innifaldir í. Jeg vildi fara fram á, að ef skriflega brtt. verður samþykt, þá yrði að minsta kosti seinni liður till. á þskj. 527 feldur, því að þá mun verða litið svo á, að þessar 20 þús. kr. verði til umráða fyrir stjórnina til þess að bæta upp lægst launuðu starfsmönnunum, en það verður ekki hægt að gera eftir þeirri reglu, sem í þskj. þessu stendur.