02.03.1925
Neðri deild: 23. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1018 í C-deild Alþingistíðinda. (2871)
70. mál, tilbúinn áburður
Flm. (Tryggvi Þórhallsson):
Jeg þakka forseta fyrir að hafa leyft þessu máli að koma til umr., þó að annað mikilsvert mál væri á dagskrá á undan. Jeg mun því gera mitt til, að það tefji ekki. Jeg álít óþarft að fara mörgum orðum um málið, þó að það sje merkilegt, vegna þess, að öll aðalatriði þess eru tekin fram í greinargerð frv. Leyfi jeg mjer að leggja það til, að frv. verði vísað til landbn., að umræðu lokinni.