11.03.1925
Neðri deild: 30. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1047 í C-deild Alþingistíðinda. (2904)

88. mál, fátækralög

Bjarni Jónsson:

Undrast jeg það, að hv. þm. Barð. (HK) skuli undrast yfir mjer. Man jeg ekki betur en að jeg hafi verið frv. þessu fylgjandi altaf, ekki að formi, heldur hefi jeg fylgt þeirri hugsun, sem kemur fram í liðunum a, b og d. Undrast jeg það, að sá mæti maður skyldi ekki taka eftir því, að jeg taldi c-lið vafasaman. (HK: Jeg tók eftir því.) Annars er niðurfelling skulda svo lítilsverð, að jeg mintist ekkert á það atriði. Jeg talaði aðeins um það, að málið færi til nefndar, því að jeg treysti henni til þess að finna það form, er allir gæti orðið sammála um. Væri ef til vill besta formið að bera frv. þannig undir atkvæði, hvort þjóðfjelagið ætli að skerða mannrjettindi manna og hegna þeim fyrir það, að þeir hafa orðið að þiggja styrk vegna ómegðar, slysa eður elli.

Það er undarlegt, að finnast skyldi nokkur sá þm., sem væri á móti aðalatriðum frv. Ekki trúi jeg hv. þm. Barð. (HK) til þess. Hann vill ekki hegna mönnum fyrir það, að þeir eiga mörg börn, eða láta ríkið svifta sjálfsögðum mannrjettindum þá, sem verða fyrir því slysi að missa hönd eða fót. Veit hann vel, að ekki skerðist mannvit þeirra við það. Hitt veit hann og, enda öllum ljóst, að 10 barna faðir, sem þarf styrks, missir eigi heldur neitt af mannviti sínu af þeirri ástæðu, heldur eykst það, því lengur sem hann berst fyrir börn sín og þjóðfjelagið. Það gæti ef til vill verið rjett að taka atkvæðisrjett af mönnum vegna elli, og þá við eitthvert vist æfiskeið. En ekki er jeg með því, að sextugir menn sje sviftir mannrjettindum, vegna þess eins, að þeir hafa barist lengur en aðrir fyrir þetta þjóðfjelag.

Sje því hægt að fá aðalhugsun frv. fram, skal jeg hvorki blikna nje blána undan ákærum neins manns fyrir það, að greiða því atkvæði. Jeg efast svo ekki um, að frv. fari til 2. umr. og nefndar.