12.03.1925
Neðri deild: 31. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1066 í C-deild Alþingistíðinda. (2922)
90. mál, ungmennafræðsla
Bjarni Jónsson:
Jeg er sammála hv. flm. um það, að það sje nauðsynlegt að skipa þessum málum með lögum.
Það hafa lagst nokkrar umræður á þetta mál í fjvn., og hún hefir komið sjer saman um að láta, jafnframt því sem styrkveiting til slíkra skóla er ákveðin, setja einhver föst ákvæði um það, hversu mikinn hluta ríkissjóður skyldi leggja í stofnkostnað og hversu mikið í rekstrarkostnað, og hversu mikinn íhlutunarrjett stjórnin skyldi hafa gagnvart þessum skólum. Jeg býst við, að hv. flm. komi það ekki á óvart, þó að jeg vildi leita samkomulags í nefndinni um að koma með brtt. við þetta frv. áður en það kemur til 2. umr. Mjer þótti ekki þörf að hafa þær til áður 1. umr. fór fram, en jeg vil benda hv. nefnd á, að jeg ætla að koma brtt. einn, ef ekki fást fleiri, sem jeg þó býst við.
Þó að jeg sje því sammála, að þessu eigi að skipa með lögum, er margt í frv., sem jeg mundi kjósa á annan veg, og það ýms höfuðatriði, svo sem það, hvað skuli kent í skólunum yfir höfuð að tala. því að jeg vil ekki, að í þeim ungmennaskólum, sem ríkið kostar, sje neinn munur á fræðslu, nema jeg máske við nánari athugun finni eitthvað í hinum svokölluðu gagnfræðaskólum, sem mætti fella niður. Höfuðatriðið ætti að vera það, að þessir skólar gefi allir jafngóða og jafnmikla mentun, og sömu mentun. Býst jeg við, að brtt. frá mjer hnigi í þessa átt.
Um annað er jeg sammála hv. flm., og það er það, að það ætti að vera jafnrjetti milli manna í landinu í þessu efni. En jeg er hissa á, að hann hefir ekki í frv. tekið meira tillit til þessarar skoðunar. Auðvitað hefði hann þar af leiðandi átt að leggja til, að gagnfræðaskólinn, sem er í Reykjavík og mestmegnis er sóttur úr Reykjavík, þótt kostaður sje einungis af ríkinu, að hann verði lagður niður og í staðinn komi samskonar gagnfræðaskóli og í sveitunum, styrktur af ríkinu að nokkru leyti. Það væri jafnrjetti.
Sömuleiðis verður það afleiðingin af því, að allir hafi sama rjett til ríkissjóðs og til mentunar, að ríkisskólinn á Akureyri sje lagður niður og Akureyri lofað að kosta skóla sinn á sama hátt og önnur hjeruð, en fái ríkisstyrk til skólarekstrarins á sama hátt og sveitirnar fá til sinna skóla.
Annað mál er með einn skóla, sem hv. flm. nefndi, Eiðaskólann. Hann er þannig til kominn, að þingið tók á móti gjöf frá þessu hjeraði, jörð með öllum húsum, og skuldbatt sig til að halda þar skóla uppi. Jeg undirstrika það, að þessi skóli er orðinn til sem afleiðing af þessari gjöf. Það er ekki hægt að fara fram á, að hann sæti sömu kjörum og aðrir skólar, nema því aðeins, að Eiðaeigninni sje skilað aftur.
Þá er eitt í frv. þessu, sem hallar talsvert jafnrjetti manna í þessu efni, sem sje, að menn vilja koma upp aðeins 5 slíkum skólum. Ef það er nóg, að hafa þá 5, þá nægja þeir skólar, sem þegar eru til. Ef ekki þarf að fara meir eftir óskum og þörfum hjeraðanna en að hafa skólana 5, og ef t. d. Gullbringu- og Kjósarsýsla og aðrar mjög fjarliggjandi sýslur eiga að sameinast um skólahald, þá er eins gott að komast af með Hafnarfjarðarskólann. Mun þessvegna brtt. mín hníga að því atriði, að ekki skuli lögákveða, hve margir skólarnir sjeu; en þar sem sýslur sameina sig, eftir því sem landshættir og fólksfjöldi er, og vilja koma upp skóla, þá sje þeim veittur sá sjálfsagði styrkur til stofnkostnaðar og rekstrar. Vil jeg, að kenslumálastjórnin setji reglugerð um, hvað kenna skuli í slíkum skólum, og láti kenna það sama í þeim öllum.
Annars er ekki þörf á að telja upp efni brtt. þessarar, en jeg bið nefndina að eiga von á henni.