20.04.1925
Neðri deild: 60. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1110 í C-deild Alþingistíðinda. (2971)
114. mál, ríkishappdrætti
Jón Baldvinsson:
Jeg hjó eftir því í ræðu hv. aðalflm. (MJ), að ríkissjóður mundi hafa fulla þörf á tekjum þeim, sem frv. þessu er ætlað að gefa. Það var síst að ástæðulausu að minnast á þetta, og átti einmitt vel við í dag, þar sem þeir atburðir hafa gerst, að þessi hv. deild hefir kastað á burt miljónarfjórðungi, sem sýnt var fram á með rökum, að væri hagnaður tóbakseinkasölunnar.
Hitt þykir ef til vill dálítið undarlegra, að frv. þetta skuli koma fram sama daginn og næst á eftir að tóbakseinkasalan var drepin, og að frv. þessu skuli standa sömu mennirnir, er unnið hafa á móti einkasölunni, vegna þess, að ríkissjóður ætti ekki að hafa neina verslun með höndum, og að vakið hafi óánægju, hvað forstöðumenn ríkiseinkasölufyrirtækjanna væru hátt launaðir í samanburði við aðra embættismenn þjóðarinnar.
Þessa sömu óánægju virðist mjer þessu frv. ætlað að vekja, þar sem laun forstöðumanns happdrættisins eru áætluð um 8–12 þús. kr. á ári. Jeg sje ekki betur en þetta komi í bág við það, sem hv. aðalflm. (MJ) hefir þráfaldlega haldið fram áður, að 12 þús. kr. laun væru alt of há í samanburði við það, sem þeir menn fá, er laun taka eftir launalögunum. Verður því ekki annað sagt en að hv. 4. þm. Reykv. (MJ) hafi slegið sig ónotalega á munninn, að flytja frv. þetta og mæla fyrir því.
En það, sem mjer finst þó einkennilegast við frv. þetta, er það, er jeg benti á áðan, að því er ætlað að vinna upp þær tekjur, sem tóbakseinkasalan gaf á ári. Þessvegna virðist mjer undarlegt, að lofa þá ekki tóbakseinkasölunni að standa, úr því að ríkissjóður má ekki við að missa tekjurnar af henni. Aðferð hv. flm. er því skrítin, að vilja fella einkasölu á tóbaki, en setja upp aðra einkasölu handa ríkissjóði, sem ekki getur gengið út á annað en að narra fje út úr almenningi. Því happdrætti er og getur aldrei orðið annað en fjárhættuspil, og mjer finst það síst eftirsóknarvert, að ala slíkan hugsunarhátt upp í þjóðinni, að leika sjer svo ljettúðarlega með peninga þá, sem aflað er með súrum sveita. Happdrætti getur aldrei orðið annað en það, að fjöldi manna verði fleginn. Sú er að minsta kosti reynslan í öðrum löndum.
Annars stóð jeg aðallega upp til þess, eins og jeg hefi nú sagt, að benda á ósamræmi hv. flm. í framkomu þeirra í tóbakseinkasölunni og flutningi þessa máls. Hana vilja þeir feiga, og hafa báðir ljeð atkvæði sitt til þess að kveða hana niður, af því að ríkissjóður eigi ekki að vasast í neinni verslun. En að reka happdrættisverslun, það á að vera sjálfsagt. Það er því auðsætt, að þessir menn, sem barist hafa móti tóbakseinkasölu ríkisins, hafa ekki gert það af „princip“-ástæðum, heldur einhverjum öðrum ástæðum, og finst mjer þá ekki ólíklegt, að svo geti verið um fleiri.
En hvað sem öllum ríkisrekstri liður, þá er sannfæring mín, að slíkan ófögnuð sem þetta frv. eigi að kveða niður, og ganga svo frá, að það stingi aldrei upp höfðinu framar.