20.04.1925
Neðri deild: 60. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1113 í C-deild Alþingistíðinda. (2973)

114. mál, ríkishappdrætti

Tryggvi Þórhallsson:

Það var rjett fyrir ári síðan, að við höfðum samskonar frv. til meðferðar hjer í hv. deild. Nú er 20. apríl, en það var 22. apríl í fyrra, svo að við getum sagt, að við höldum happdrættisafmæli í dag.

Það má að vísu segja, að þetta frv. sje það skárra því í fyrra, að nú fylgir ekki sá böggull skammrifi, að erlendir fjárglæframenn holi sjer hjer niður og reki þessa atvinnu í skjóli selstöðuverslunar. En að öðru leyti er þetta frv. samt verra, af því að með því er ekki um neinn vissan gróða að ræða fyrir ríkissjóð, en það var þó fastákveðið með frv. í fyrra.

En þetta frv. á engan rjett á sjer, og því á það að falla. Í staðinn fyrir að ala menn upp við atorku og dugnað og að afla peninga með vinnu sinni, þá er með frv. efnt til fjárglæfra og ómensku. Hjer er því um óþrifnaðarstefnu að ræða, sem ekki á að ná að festa rætur. Verður ekki annað sagt en að þeir menn sjeu brjóstheilir, sem bera slíkt fram, því að engin afsökun er þeim það, þó að frv. nái aldrei fram að ganga. Fyrir þeim vakir því ekkert annað en að tefja þingstörfin, því þó að frv. fái að fljóta til nefndar að þessu sinni, þá er hitt víst, að það kemur aldrei frá henni aftur.

Annars hefir því óspart verið hampað, að það værum við stjórnarandstæðingar, sem tefðum mest þingstörfin. Nú sýnir sig, með hve miklum sannindum slíkt er mælt, er tveir Íhaldsmenn leyfa sjer þá fífldirfsku, að ætlast til, að slíkt frv. sem þetta fái að ganga fram.

Jeg vil leyfa mjer að leggja til, að frv. þetta verði ekki látið tefja þingstörfin, og jeg leyfi mjer að skora á hv. þdm. að fella það nú þegar.