12.05.1925
Neðri deild: 78. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1135 í C-deild Alþingistíðinda. (2987)
119. mál, húsaleiga í Reykjavík
Tryggvi Þórhallsson:
Það eru nú 94 dagar síðan Alþingi kom saman. Nú er líka búið að afgreiða fjárlög hjeðan, og eru líkindi til, að þau verði samþ. í hv. Ed., án þess að þeim verði breytt. Eru þá fá mál eftir, og ætti ekki að þurfa að vera nema 2–3 dagar fram að þinglausnum. Ætti ekki að gera gyllingar til þess að lengja þingið frá því, sem það er nú orðið.
Nú stendur svo á, að á dagskrá eru 2 mál, sem komin eru hjer til 2. umr., en hvorugt þeirra hefir fengið fulla meðferð í nefnd. Í fyrra málinu hefir aðeins komið nál. frá minnihl. nefndar, en í hinu málinu hefir ekkert nál. komið. Eru því engar líkur fyrir því, að þessi mál nái fram að ganga, og er því sjálfsagt að vera ekki að tefja tíma þingsins með þeim. Er og þetta mál að sjálfsögðu vel til þess fallið að vekja deilur, þar sem bæjarstjórn Reykjavíkur hefir t. d. mælt á móti því, að það yrði samþ., en það er vanalegt, að fara nokkuð að hennar ráðum í málum sem þessum. — Að öllu þessu athuguðu legg jeg til, að málinu verði vísað til stjórnarinnar.