14.05.1925
Neðri deild: 80. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1139 í C-deild Alþingistíðinda. (2992)
119. mál, húsaleiga í Reykjavík
Bjarni Jónsson:
Hv. 2. þm. Reykv. (JBald) sagði, að húsnæðisviðskiftin væru einhver stærstu viðskifti manna nú á dögum. Þetta má til sanns vegar færa, en undarlega kemur það manni fyrir sjónir, að þessi „stærstu viðskifti manna“ skuli undanþegin úrskurði dómstóla landsins. Þeir eru þó til þess settir, að allir megi þangað sækja til að fá rjettan úrskurð um mál þau, er þeir sækja eða verja. En hjer eru öll mál, út af þessum miklu viðskiftum, sett undir úrskurðarvald einnar nefndar, og þannig er 1/5 landsmanna tekinn út úr dómsmálasambandi ríkisins og sviftur almennri rjettarvernd í mestu viðskiftum sínum. Er það hart fyrir þá menn, er mest leggja af mörkum til ríkisins, að þeim skuli meinað að njóta þeirrar rjettarverndar, sem ríki er vant að telja sjer skylt að veita þegnum sínum. Er þetta og hið dæmalausasta brot á grundvallarlögum þjóðfjelagsins, sem segir, að dómsvaldið skuli vera hjá dómendunum. Er það frekja mikil og ósvinna, er menn vilja halda verndarhendi yfir slíkum brotum. — Enn er hjer svo um þessi merku viðskifti, að ef menn hafa komið sjer saman um hærri leigu en húsaleigunefndin álítur að rjett sje, þá skuli skriflegir og vottfastir samningar vera ógildir. Hvernig má þetta nú samrýmast þeirri virðingu, sem menn bera fyrir loforðum alment? Hvernig mundi svona regla reynast í viðskiftum þjóða á millum?
Hv. þm. (JBald) talaði um einhverja volduga stofnun, sem hjer myndi vera að verki, og hefir víst átt þar við húseigendafjelagið. En jeg vil spyrja hv. þm., hvort þeim finnist það tiltökumál, þó þeir menn, sem þar eiga hlut að máli, vilji reyna að hafa áhrif í þá átt, að löggjöfin ræni þá ekki skýlausum rjetti. Hv. þm. (JBald) segði víst, að vonum, eitthvað, ef það væru verkamenn, sem verið væri hjer að fremja rjettarbrot á. En hjer er verið að taka sjerstaka tegund eigna og eigenda út úr og setja þá undir önnur lög. Jeg gæti skilið það, ef farið væri fram á að taka allar eignir af öllum mönnum, en hitt ekki, því þá er misrjetti framið á þegnunum, sem ekki má eiga sjer stað.
Þá hefir hv. þm. (JBald) ennfremur haldið því fram, að hjer væri um árás á fátæka barnamenn að ræða. En jeg get fullvissað hann um, að þeim líður miklu ver undir núverandi fyrirkomulagi, þar sem þeir geta ekki flutt úr lelegum og óhollum íbúðum, vegna þess, að húsnæði losnar hvergi annarsstaðar. Þá sagði hv. þm. (JBald) ennfremur, að fólk, sem ætti börn, fengi ekki leigt. Þetta er ekki satt. Það er ekki spurt um það, hvort börn sjeu með, heldur um hitt, hvort leigan verði greidd. Annars er nú víst fullur helmingur af öllu fólki í bænum börn, og sýnir það eitt, hvað þessi staðhæfing er heimskuleg og á litlum rökum bygð. Þetta er ein af firrum þeim, er þessir menn spinna upp og reyna að leiða Alþingi til þess að brjóta stjórnarskrána.
Hv. nefnd hefði eigi átt að þurfa nema 1–2 daga til þess að íhuga málið, en hún þykist nú hafa lokið nefndarstarfinu vel, með því að senda frv. til bæjarstjórnar Reykjavíkur til umsagnar, en sjálfsagt beðið um það um leið, að svarið kæmi ekki mjög fljótt. Við hjer í hv. þingdeild getum ekki lagt neinn dóm á bæjarstjórnina, en verk hennar dæma hana. Og jeg skil ekki, að hv. þm. geti látið það spyrjast um sig, að þeir leyfi lögunum að standa einum degi lengur.