08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1146 í C-deild Alþingistíðinda. (3003)

125. mál, sauðfjárbaðanir

Flm. (Bjarni Jónsson):

Jeg er alveg hissa, að sjá mótmæli móti því, að þetta frv. komi fram, og sýnir það bráða nauðsyn þess, að fleiri þyrfti að baða en gert hefir verið. En jeg get nú látið það eftir hv. þm., að tefja ekki tímann með langri ræðu.

Það er dálítið einkennilegt með þessar baðanir, að það stendur í stímabraki milli bændanna, sem eiga fjeð, og yfirvaldanna, um það, hvort þeir megi nota þetta baðlyf. Það er dálítið einkennilegt, að þeir skuli ekki fá að ráða því sjálfir, úr hverju þeir baða sínar kindur til þrifabaðs. Ef það ætti að vera útrýmingarbað á fjárkláða, þá væri það eðlilegt, að dýralæknir og stjórn skifti sjer af því, en þar sem þetta er ekki annað en þrifabað, sem þingið kanske þrengir upp á bændurna, ætti þeir ekki að þurfa að sækja um það, hvað þeir megi nota, en umkvartanirnar hafa verið svo miklar, að okkur þótti rjett að láta það koma undir álit þingsins, hvort rjett væri að banna mönnum slíkt. Við höfum hagað till. okkar þannig, að stjórnin geti veitt leyfi til að nota þetta baðlyf, þeim er vildi, án þess að breyta lögunum að neinu leyti. Þetta vildum við leggja undir rannsókn Alþingis, og þótti málinu þar vel komið, þar sem þar situr fjöldi bænda, sem hljóta að vera vel að sjer um það, hvort mætti nota þetta Coopers baðlyf. Hinsvegar veit jeg, að dýralæknir hefir lagt töluverða áherslu á það, að hitt væri notað, en jeg veit, að margir bændur úr mínu kjördæmi hafa kvartað yfir því, að það væri ónýtt. Jeg get ekki dæmt um það, og vildi því, að málið mætti fara til landbn., til þess að hún athugaði það, því að hún vill sjálfsagt ekki ganga á móti óskum bænda í þessu, ef það er hættulaust. Vil jeg því biðja um, að frv. verði vísað til 2. umr. og landbn.