08.05.1925
Neðri deild: 75. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1150 í C-deild Alþingistíðinda. (3007)

125. mál, sauðfjárbaðanir

Pjetur Þórðarson:

Það var á þinginu 1921, þá flutti jeg till., sem gekk alveg í sömu átt og þetta frv.; það voru málaleitanir og beiðnir úr ýmsum hjeruðum landsins; en helsta mótspyrnan, sem þessi till. fjekk þá, stafaði einmitt frá dýralækninum hjer í Reykjavík. Það kom fram við athugun málsins, að hann hafði heldur mælt á móti því, að þessi baðtegund væri notuð, en jeg er sama sinnis um það, að jeg vil mæla með því, sem þetta frv. fer fram á, og það er vegna þess, að notkun þessa lyfs hefir um langt skeið reynst með þeim bestu til þess að útrýma kláðamaurnum, þar sem hann er nokkuð almennur og veldur miklum skaða.

Annars hefir það verið svo á síðustu árum, að menn þykjast ekki geta verið án þessa lyfs, svo að ekki er að furða, þótt Húnvetningar og Dalamenn óski eftir að fá að nota þetta lyf með öðrum. Það skal ekki standa á mjer að afgreiða þetta mál frá nefndinni, en jeg býst við, að þótt hún fari að leita til dýralæknis, þá muni hann heldur verða á móti því, að leyfa það.