02.03.1925
Neðri deild: 23. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 1138 í B-deild Alþingistíðinda. (309)
4. mál, fjáraukalög 1924
Frsm. (Þórarinn Jónsson):
Fjvn. hefir ekki getað athugað þessa brtt., þar sem hún er svo seint fram komin. Get jeg því ekki fyrir hönd nefndarinnar sagt, hvernig hún muni líta á þessa fjárveitingu, en það mun rjett vera hjá hæstv. atvrh. (MG), að í fyrra mun hafa verið búist við þessari greiðslu á síðastl. ári, þó að jeg minnist þess ekki, að á það hafi verið minst við umr. um fjárlögin. Mjer fyrir mitt leyti sýnist ekki nema sanngjarnt, og enda varla hjá því komist, að samþykkja þessa brtt., þó að fjvn. hafi um hana óbundin atkv., eins og jeg hefi áður sagt.