02.05.1925
Neðri deild: 70. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í D-deild Alþingistíðinda. (3099)

113. mál, frestun embættisveitinga og sýslana

Tryggvi Þórhallsson:

Jeg vildi aðeins bæta því við, eftir að hafa lesið till. nákvæmlega, að jeg vænti þess, að hæstv. stjórn hafi hliðsjón af þessu, sem talið er upp í till. minni, og yfirleitt af því, sem fram hefir komið á þinginu um niðurlagningu embætta, þegar hún leggur sinn dóm á það, hvað hún telur ástæðu til að leggja fyrir þingið.