05.05.1925
Neðri deild: 72. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 51 í D-deild Alþingistíðinda. (3107)
123. mál, skipsströnd
Flm. (Jón Kjartansson):
þeir, sem hafa kynt sjer lög um skipströnd, frá 14. jan. 1876, munu hafa veitt því eftirtekt, að þar er aðaláherslan lögð á, að sem mestu verðmæti sje bjargað úr skipunum. Er mikil skylda lögð á herðar mönnum til að aðstoða við björgun. Mæla þau lög svo fyrir, að allir fulltíða menn sjeu skyldir að hlýða boði hreppstjóra eða sýslumanns við björgunina, láta af hendi hverskonar áhöld, sem að gagni mega koma, og lána hús til að geyma í muni, sem bjargað er, þessi skylda er svo víðtæk vegna þess, að venjulegast er mikið verðmæti samfara strandinu, og eins eru þeir, sem hagsmuna eiga að gæta með tilliti til skips og flutnings, sjaldnast viðstaddir.
En þrátt fyrir það, þótt lög þessi sjeu svo ströng og ítarleg, þá kemur það ekki ósjaldan fyrir, að skip stranda og alt eyðilegst með þeim, án þess að tilraun sje gerð til björgunar. Á jeg hjer ekki við þau tilfelli, þar sem ekki verður neinni björgun komið við, heldur þau tilfelli, þegar björgun er framkvæmanleg, en henni ekki sint. Þetta kemur til af því, að skipstjórinn, sá maður, sem að lögum er umboðsmaður skipseiganda og annara, sem hagsmuna eiga að gæta á skipinu, gerir tíðast einungis þær ráðstafanir, að strandið skuli yfirgefið, og neitar því að gera tilraunir til að bjarga. Stundum getur átt sjer stað, að slík ráðstöfun af hendi skipstjóra líti í bili út sem eðlileg, sjerstaklega ef líkur eru til, að skipið náist út. En oftast er þetta ekki tilfellið, og engu síður getur verið rangt af skipstjóra að haga sjer svona, þó hann ætli, að skipið kunni að nást, því skipið getur hæglega sokkið fyr en varir í sand og sjó, eins og svo oft á sjer stað við Skaftafellssýslu, og verður þá engu bjargað. Hjálpar það þó skipinu heldur til að haldast uppi, ef losaður hefir verið farmur úr því. Er því rangt að reyna ekki strax að ljetta skipið, ef gera á tilraunir til að ná því út.
Bæði strandlögin og 10. kap. siglingalaganna, sem um þetta fjallar, leggja algerlega á vald skipstjóra að ákveða, hvort bjarga skuli úr strönduðu skipi eða ekki. Þetta ákvæði getur ekki verið komið inn í lögin til þess, að ver fari fyrir þeim, sem hagsmuna hafa að gæta, heldur einungis með það fyrir augum, að björgunin verði ódýrari og ef til vill öruggari, ef skipstjórinn semur um hana eða lætur sína menn framkvæma hana. En mörg dæmi þess mætti nefna, að skip hefir farist með öllu verðmæti vegna þeirra ráðstafana skipstjórans, að strandið skuli yfirgefið og engin björgun reynd. Get jeg nefnt í þessu sambandi tvö skip, er strönduðu síðastliðinn vetur; var annað flutningaskip og hitt togari, sem hægt hefði verið að bjarga miklu og ef til vill öllum farmi úr, ef reynt hefði verið strax, en í stað þess vildu skipstjórarnir ekkert við það eiga, og þannig sukku skipin í sand og sjó með öllum farmi, svo engu varð bjargað. Venjulega leita skipstjórarnir aðeins aðstoðar valdsmanns um flutning á skipshöfninni. Nokkru seinna er strandið auglýst til sölu, en þá fæst venjulega lítið eða ekkert boð, því skipið er þá oftast sokkið í sjó og lítið upp úr því að hafa.
Nú er það ætlun flm. þáltill., að strandlögin verði endurskoðuð og jafnframt að fá athugað, hvort eigi megi koma að í lögunum ákvæðum til frekari tryggingar því, að verðmæti í strönduðu skipi verði bjargað. Raunar geng jeg þess ekki dulinn, að ekki er hægt að svifta skipstjórann þeim rjetti, sem hann hefir til að ráðstafa skipi og farmi, en þykist hinsvegar fullviss, að einhverjar skorður megi reisa við því, að ráðsmenska hans fari í öfuga átt við tilgang laganna. Vona jeg því, að hv. deild lofi till. okkar að ganga fram og eins að hæstv. stjórn muni ljúft að athuga þetta mál. Mætti það verða henni stuðningur að bera saman löggjöf annara þjóða um þetta efni. Hjer er oft um mikið verðmæti að ræða, og það getur ekki verið neinum til góðs, að það verðmæti eyðileggist með öllu.
Fleiri orð mun ekki þörf á að láta fylgja þessari till.