08.05.1925
Efri deild: 71. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 54 í D-deild Alþingistíðinda. (3113)
126. mál, landhelgisgæsla fyrir Austurland
Flm. (Ingvar Pálmason):
*) Jeg geri ráð fyrir, að eigi muni þörf langra umræðna um þessa þáltill., því að aðal ástæðurnar og flest annað, sem segja þurfti, er tekið fram eða drepið á í greinargerðinni. Þó ætla jeg að láta henni fylgja nokkur orð frá mjer í viðbót, til árjettingar því, sem í greinargerðinni segir. Það er alkunnugt, hversu fiskisæl grunnin eru meðfram Skaftafellssýslum og fyrir Austurlandi víðar; þetta sjest meðal annars á því, hversu erlendir botnvörpungar eru áleitnir á þessum slóðum og hyllast mjög til að veiða þar í landhelgi, einkum á vetrarvertíðinni, og þarna er ætíð mikill fiskur fyrri hluta vetrar. Þessi hjeruð eru þannig sett, að þar eru alstaðar hafnleysur, nema ef telja skyldi Hornafjörð, sem bæði hefir litla höfn og illa. Á síðustu áratugum hefir risið upp eigi alllítil verstöð í Hornafirði, og hefir sá útvegur oftast gefist vel, þrátt fyrir erfiða aðstöðu að ýmsu leyti. Nú er það víst, að botnvörpungar sækja þangað mjög inn fyrir landhelgi fyrri hluta vetrar, og er það mikið álitamál talið, hvort eigi valdi þeir stórspjöllum öllum almenningi, þrátt fyrir það, að allflestum landsmönnum eða öllum er meinað að sækja þangað björg; stafar það sjerstaklega af hafnleysinu.
Það er alment álit manna þar austur, sem jeg að vísu ekki veit við hve mikil lök hefir að styðjast, að miklar botnvörpuveiðar tefji fyrir og trufli fiskigöngur þar austur með landinu. Jeg veit að vísu ekki, hversu mikið er hæft í þessu, en þó hygg jeg, að flestum geti skilist, að of miklar botnvörpuveiðar fram undan Skaftafellssýslum gætu truflað fiskigöngu þaðan austur eftir.
Jeg hefi ekki þorað að fara fram á sjerstaka fjárveitingu til strandvarna á þessum slóðum, þar sem þar verður ekki við komið vjelbátagæslu, eins og á þeim slóðum, þar sem styrkur hefir verið veittur til, en aðalefni og tilgangur þessarar till. til þál. er að fá því komið til leiðar, að ríkisstjórnin láti halda uppi þar og víðar á Austfjörðum landhelgisgæslu á sjerstaklega ákveðnum tíma, þegar slíkrar gæslu er þar mest þörf. Til upplýsingar fyrir hæstv. stjórn get jeg getið þess, að fyrir Austurlandi er óvíða mikið um ágang botnvörpunga að sumrinu, fyr en kemur fram í ágústmánuð, en þá er þar mjög þörf landhelgisgæslu vegna til sóknar þessara fiskiskipa. Þá er þar einnig svæði af fiskimiðunum, sem landhelgin tekur yfir, en þau virðast hafa gleymst, þegar eftirlitsskipin hafa farið um fyrir Austurlandi, og á jeg þar við miðin kringum Geirfuglasker, sem eru á einu hinu fiskisælasta grunni fyrir Austurlandi sunnanverðu. Eru mið þessi nú oftast nefnd „á Hvalbak, og er vitanlegt, að nokkur hluti þeirra liggur innan íslenskar landhelgi. Á þessi mið sækja menn á bátum af Austfjörðum á vorvertíð, en einmitt þá (í maí) er ágengni botnvörpunga þar mikil, og hafa smáskip oft komið þaðan veiðarfæralaus. Hafa botnvörpskip, erlend eða innlend, tekið öll veiðarfærin í vörpurnar eða eyðilagt. Það er því augljóst, að það hefir gleymst löggæslunni, að landhelgin tekur út yfir Geirfuglaskerin eða þessi svonefndu Hvalbaksmið að miklu leyti, og er þar því mikil þörf eftirlits. Jeg get nú vel búist við því, að einhverjir muni svara mjer því, að landhelgisgæslu sje miklu síður þörf fyrir Austurlandi en víða annarsstaðar, en jeg álít, að einnig þar austur sje mjög mikilla og almennra hagsmuna að gæta, og stafar það af misskilningi eða ókunnleika, ef bornar eru á það brigður. Það eru sum mið þarna alþekt fyrir fiskisæld, og einnig vita allir, að fiskur gengur fast upp að landi víða við sandana og sumstaðar annarsstaðar. En smábátaveiðar (róðrarbáta) eru mjög stundaðar á þessum slóðum, og er sá útvegur aðalatvinnuvegur manna víða á Austfjörðum.
Þá liggur næst að athuga, hvort hægt muni vera að halda þarna uppi landhelgisgæslu, t. d. strax á þessu ári. Og jeg fyrir mitt leyti held, að það væri hægt. Það er t. d. vitanlegt, að björgunarskip þeirra Vestmannaeyinga, „Þór“, er enn á vegum ríkisstjórnarinnar og verður notaður eitthvað framvegis til landhelgisgæslu. Þannig var það í fyrra og verður í ár og sennilega lengur. Eins og kunnugt er, hefir „Þór“ haft aðallega á hendi landhelgisgæslu fyrir Norðurlandi á sumrum um síldveiðitímann, en þegar þeirri veiði er lokið (um miðjan september), er ekki eins mikil þörf á landhelgisgæslu fyrir Norðurlandi, enda hefir „Þór“ þá oftast verið sendur til Vestmannaeyja, án þess að jeg viti til, að þess hafi verið brýn þörf að halda uppi gæslu þar á þeim tíma árs, og getur það þó vel verið, að svo hafi verið. En jeg veit ekki til, að neinar ráðstafanir hafi verið gerðar um „Fyllu“, hvar það skip skuli vera á verði eftir að síldveiðinni er lokið, og jeg veit ekki heldur, hvort hæstv. ríkisstjórn hefir full umráð yfir því skipi, en þó vænti jeg, að hún hafi þar ákveðinn tillögurjett. Mjer hefir dottið í hug, hvort ekki mundi framkvæmanlegt að láta „Fyllu“ hafa aðalbækistöð sína einhversstaðar á Austurlandi síðari hluta sumars og að haustinu. Um þetta ætti að vera hægt fyrir ríkisstjórnina að ná samkomulagi við dönsku stjórnina, að „Fylla“ hefði aðalbækistöð sína t. d. á Seyðisfirði. Þaðan er ekki langt á vettvang, hvort sem farið yrði norður eða suður með landinu, enda eru þar og góð fiskimið mjög nærri, sem þurfa verndar við, og útgerðarkostnaður „Fyllu“ þyrfti alls ekki að aukast neitt við þessa tilhögun. Jeg veit vel, að það er víðar þörf á strandvörnum á þessum tíma árs, en jeg hygg t. d., að þó hafi „Fyllu“ aldrei verið ætlað að verja Faxaflóa eða Suðurland á þessum tíma; til þess hafi verið ætluð önnur skip, og líkt væri hægt að gera fyrir Vesturlandi. Að undanteknum máske Vestfjörðum er þörfin fyrir landhelgisgæslu á þessum tíma árs langmest á Austurlandi, og jeg held, að það sje alls ekki of djúpt tekið í árinni í greinargerð þessar þáltill., þó þar sje svo að orði kveðið, að undanfarin ár hafi engin landhelgisgæsla verið framkvæmd fyrir Austurlandi, og jeg treysti mjer til að finna þeim orðum stað, ef þörf krefur. Jeg vænti þess fastlega, að háttv. deild sjái þær sanngirniskröfur, sem eru á bak við þessa áskorun til stjórnarinnar, og samþykki því till. eins og hún liggur fyrir. Jeg get ekki búist við því, að till. mæti neinni alvarlegri andstöðu, og hefi því ekki þessa ræðu lengri.
*) Óyfirlesin ræða.