15.05.1925
Efri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (3138)

139. mál, verndun frægra sögustaða

Forsætisráðherra (JM):

Jeg tel þessa þáltill. algerlega óþarfa í sjálfu sjer. Að því er A-liðinn snertir mun þingvallanefndin hafa fyrirskipanir um að athuga þá hluti, sem hann ræðir um, og hefi jeg því ekkert við það að athuga, þó sá liður verði samþyktur. Hitt álít jeg alls ekki tiltækilegt, að mæla fyrir um endurbyggingu fomra sögustaða á næstu árum, og nóg annað mun vera til, sem gera þarf, en fara að gera kostnaðaráætlanir um þetta fyrir næsta þing. Það getur verið, að þingvallanefndin hafi einhverjar ákveðnar skoðanir um, hvað sje forn stíll, en yfir höfuð mun vera erfitt að gera út um það, svo allir verði ásáttir, eða hvort bæina skuli byggja í 10., 11. eða 13. aldar stíl. Það má vel sjá það á fornum brjefum og öðrum skilríkjum, að húsagerð hefir verið mjög mismunandi á hverri öld. Það hefir ekki svo mikið að segja, hvaða staðir eru taldir upp í þáltill., því þá ber að skoða fremur sem dæmi um, við hvaða staði sje átt, heldur en að þá beri að taka öðrum fremur. Jeg get t. d. nefnt á Norðurlandi þverá í Eyjafirði, sem á síðari öldum hefir heitið Munka-Þverá, og einnig mætti nefna Grund í Eyjafirði. Brtt. hv. 2. þm. S.-M. (IP) tel jeg allsendis óþarfa og yfir höfuð ekki til bóta, og mun fáum þykja þörf að byggja upp á næstunni staði eins og t. d. í Vatnsfirði, Ljósavatn o. s. frv.