15.05.1925
Efri deild: 79. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í D-deild Alþingistíðinda. (3141)

139. mál, verndun frægra sögustaða

Sigurður Eggerz:

Jeg vil taka í sama strenginn og hv. 1. þm. Rang. (EP). Jeg álít, að einna mest ríði á að byggja upp og vernda Hlíðarenda og Bergþórshvol, og það ætti að vera auðvelt að koma því í framkvæmd. Það er dagsanna, sem háttv. 1. þm. Rang. (EP) sagði, að nær allir útlendir ferðamenn, sem hingað koma, fara þangað austur, og er leitt til þess að vita, að þeir skuli þurfa að horfa upp á þá niðurníðslu, sem þar á sjer stað eins og nú standa sakir.