24.03.1925
Neðri deild: 41. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í B-deild Alþingistíðinda. (32)

1. mál, fjárlög 1926

Magnús Torfason:

Jeg verð að byrja á því að segja, að jeg gat ekki varist því að brosa, þegar hv. þm. Dala. (BJ) var að tala um þann mikla kostnað, sem hlytist af þingrofi. Mjer þykir þetta svo ólíkt honum, eins og raunar ýmislegt fleira, sem farið er að brydda á í framkomu þessa hv. þm. Annars ætlaði jeg engu að svara hv. þm. Dala. (BJ), en gat þó ekki gengið framhjá þessu.

Það var hæstv. stjórn, sem jeg vildi víkja nokkrum orðum að. Hæstv. ráðherrar hafa kvartað undan því, að stjórnin hafi ekki fengið nándarnærri nóg af skömmum þessa tvo daga, sem gengið hefir verið um eldhús hennar, og hefi jeg freistingu til að bæta það upp, svo að hún megi betur við una. En að stjórnin segir þetta, mun sennilega vera af því sprottið, að hún er orðin svo illu vön þessa 10 skammadaga, sem yfir hana hafa dunið að undanförnu, því að vitanlega hófust eldhúsdagsumræður með varalögreglunni, og tel jeg þá rjett að taka þar upp þráðinn, er hann brast, enda hafði jeg hugsað mjer, er við dómsmálaráðherra skildum síðast í því máli, að heilsa upp á hann við tækifæri, og nota þá þetta tækifæri til þess. Jeg býst sem sje ekki við, að varalögreglufrumvarpið komi aftur í deildina. Af frv. var megnasta nálykt, er það kom til nefndarinnar, enda var bráðafár í því, er það kom í deildina, og nú er komin sú ýlda í skrokkinn, að það mun ekki frambærilegt fyrir deildina.

Annars ætla jeg ekki að deila við hæstv. forsrh. (JM) að þessu sinni um þetta mál, heldur vildi jeg flytja honum þakkir mínar fyrir það, hvað hann, aldurhniginn maðurinn, er dæmalaust námfús. Jeg sagði honum, þá er varalögreglan var til umræðu, með nokkrum vel völdum orðum, en alls ekki neinum stóryrðum, hvernig forsætisráðherra bæri að haga sjer til orðs og æðis, bæði utan þings og innan, og hefir hann tekið það til greina, enda er breytingin undraverð og mikill munur á allri framkomu hans núna síðustu dagana.

Þó þarf jeg að leiðrjetta örfá atriði hjá hæstv. forsrh. (JM) í sambandi við þau orð hans, er hnigu í þá átt að kalla mig „sýslumannaprýði“ ; hann kvaðst miða þau við ræðu, sem jeg hefði haldið hjer í deildinni honum til dýrðar. En þetta er ekki rjett; jeg átti ekki upptökin, enda var ræða mín í alla staði hógvær og fullkomlega þingleg. En hæstv. forsrh. hóf sína ræðu með því, eða á þá leið, eftir því sem lesa mátti úr orðunum, að hann vænti einskis góðs af mjer og hefði heldur ekki búist við neinu velsæmi af minni hendi, þó að hann hinsvegar virtist bæði slá úr og í, eftir því sem hann stilti skap sitt, er hann fann, að hann hafði of langt gengið.

En það var þó sjerstaklega eitt atriði í sambandi við þetta, er jeg vildi leiðrjetta. Hæstv. forsrh. sagði, að jeg mundi ekki þora að láta ræðu mína koma óbreytta í Alþt. eins og jeg flutti hana. Nú hefi jeg lesið ræðuna og athugað hana, og jeg hefi ekki þurft að fella úr eitt einasta orð, heldur hert lítilsháttar á orðfærinu á einstaka stað. Þarna hefir því hæstv. forsrh. skotið yfir markið, úr því hann hjelt, að jeg þyrði ekki að standa við orð mín, og jeg get bætt því við, að jeg hefi aldrei sagt nokkurt stygðaryrði til nokkurs þm. í þessari hv. deild þessi tvö síðustu þing. Þetta getur hæstv. forsrh. spurt samþm. mína um, og efast jeg ekki um, hvorum okkar verði borin betur sagan í þessu máli, ef vitnaleiðsla á að fara fram um það.

Annars virðist hæstv. forsrh. (JM) hafa reiðst svo þessum rjettmætu orðum mínum, um að dómsmálaráðuneytið hefði sett niður síðan hann tók síðast við stjórninni þar, að hann hefir látið skapið hlaupa með sig í gönur. En hvað hefir svo skeð síðan jeg mælti þessi orð? Það hefir verið staðfest af helming deildarinnar, og það betri helming hennar, að framkoma hæstv. dómsmálaráðherra í Krossaneshneykslinu væri með öllu óverjandi. Og þessi dómur er margfalt harðari og þyngri en sá, er jeg kvað upp og hann reiddist mjer fyrir.

Því hefir jafnan verið haldið fram, að hæstv. forsrh. væri gætinn maður og varkár og kynni mannasiði bæði utanlands og innan; en þó er það nú svo, að þrátt fyrir þessa kosti, þá hefir hann sýnt meiri móðgun upp á við en dæmi eru um annan einbættismann þjóðarinnar. Sýnir þetta út af fyrir sig, að manninn vantar ýmislegt, eins og t. d. nógu næma tilfinningu fyrir því, sem almennast er að kalla einu nafni velsæmi. Annað lítið dæmi mætti nefna: Í smámáli hjer í deildinni í gær varð jeg að stöðva hæstv. forsrh., svo að hann færi ekki langt út fyrir þau takmörk, sem sæmandi er æðsta embættismanni þjóðarinnar. En hann áttaði sig, er jeg benti honum á, hversu fráleit framkoma hans væri, því að hann er námfús, hæstv. forsrh., eins og jeg hefi áður tekið fram.

Svo er það eitt mál enn, sem jeg vildi koma að, þetta fræga „brennivínsmál“, sem kallað er einu nafni „Marian“- eða „Veiðibjöllu“-málið. Hæstv. forsrh. sagði, að öll rannsókn þess máls hefði verið svo aðdáanlega góð, að slíkt mundi eins dæmi hjer á landi, að rannsókn í jafn umfangsmiklu máli hefði gengið svo fljótt og vel.

Jeg ætla ekki að draga neitt úr heiðri stjettarbróður míns nje rýra sæmd hans, enda er bæjarfógetinn í Reykjavík gamall skólabróðir minn og að góðu kunnur, og efast jeg alls ekki um, að hann hafi gætt skyldu sinnar í fylsta máta. En áður en bæjarfógeti tók við málinu fór fram forrannsókn, en um þá rannsókn þagði hæstv. forsrh. vendilega. Um þá rannsókn gæti þó verið nauðsynlegt að vita, því að oftast veltur mikið á, að hún sje ekki síður í lagi en hinar aðrar, sem á eftir fara. Hann sagði líka hæstv. forsrh., að dómsmálaráðuneytið hefði stutt bæjarfógeta mjög í rannsókn þessa máls, og því hefði því verið lokið á svo skömmum tíma. Jeg verð að lýsa gleði minni yfir því, að dómsmálaráðuneytið hefir sýnt slíka rögg af sjer og hjálpað bæjarfógeta, þó jeg hafi aldrei alla mína embættistíð orðið slíkrar hjálpar aðnjótandi. Hitt er mjer kunnugra um, að dómsmálaráðuneytið leiðir hjá sjer í lengstu lög að veita slíka hjálp, eða þá ekki fyr en um seinan.

Jeg rannsakaði stórt mál á Ísafirði, en svo lengi dró ráðuneytið að ákveða, hvort höfða skyldi sakamál eða ekki, að úrskurður þess kom ekki fyr en eftir að jeg var farinn frá Ísafirði. En ráðuneytið gerði annað; það ljeði nokkrum mönnum ýms skjöl úr málinu og var jeg síðan eltur með málsókn og allskonar flækjum. Jeg er ekki að segja, að það hafi ekki verið leyfilegt að lána skjölin, en málaeltingurinn bakaði mjer 1000 króna skaða, er jeg beinlínis tapaði í reiðu fje, fyrir nú utan öll önnur óþægindi, er jeg beið.

Jeg vildi taka þetta fram að þessu sinni, vegna þess að jeg bjóst ekki við að fá tækifæri til þess síðar. Jeg þarf ekki að fella neinn dóm um hæstv. forsrh. nje taka upp það, sem um hann hefir verið sagt þessa tvo daga. Minn dómur um hann sem dómsmálaráðherra hefir fallið áður, og honum hefir deildin ekki breytt.