20.03.1925
Neðri deild: 38. fundur, 37. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í D-deild Alþingistíðinda. (3223)
98. mál, Krossanesmálið
Jón Baldvinsson:
Jeg ætla mjer að mestu leyti að víkja að þeirri hlið málsins, sem snýr að innflutningi verkamannanna norsku. Hefir lítið á það verið minst upp á síðkastið. Hefst það með því, að verkamannafjelagið á Akureyri kærir 15. júlí síðastl. verksmiðjuna í Krossanesi fyrir það að hafa flutt inn um 50 verkamenn. Var sú kæra afhent bæjarfógetanum á Akureyri, og mun hann hafa borið málið undir stjórnarráðið, en síðan ekkert, svo kunnugt sje, verið hafst að í málinu. Að vísu er nú upplýst, að stjórnin hefir ekki talið sig hafa heimild til að banna þessum mönnum landsvist hjer, en þó er óupplýst enn, hvers vegna sótt var um fyrir hönd forstjórans að flytja mennina inn. Þá er það og merkilegt og sýnir, hve illa þetta mál er undirbúið og rannsóknarvert, að forstjórinn í Krossanesi, sem beðið hefir um, að sótt væri um þetta leyfi fyrir sig, neitar síðar, er hæstv. atvrh. (MG) spyr hann um það, að hann viti nokkuð um þetta. Sýnir þetta greinilega, að framferði verksmiðjustjórans í þessu máli yfirleitt er ekki svo hreint og grunlaust, að ekki sje athugunar- og rannsóknarvert, og að varlegt sje að taka alt gott og gilt, sem forstjórinn segir, eins og hæstv. atvrh. (MG) og bæjarfógetinn á Akureyri virðast hafa gert.
Hinsvegar er og alveg fullyrt, að þó að forstjórinn í Krossanesi hafi fengið leyfi til að flytja inn 15 menn, þá hafi hann ekki þurft að flytja inn meira en 6 sjerfræðinga við vjelarnar, en hann flutti nú inn um 50 menn. Og það er óhugsandi, að verksmiðjustjórann hafi ekki grunað, þegar hann flutti inn menn þessa, að hann væri að gera rangt. Eða hvers vegna tilkynti hann ekki hlutaðeigandi bæjarfógeta, að hann hefði flutt þá inn, eins og honum bar að gera. Og nú vil jeg spyrja hæstv. atvrh. (MG) að því, hvort forstjórinn hafi fengið nokkrar sektir fyrir að vanrækja þessa tilkynningu.
Hinsvegar sagði hæstv. atvrh. (MG), að ef mönnum þessum hefði verið vísað úr landi — hann virtist þá ætla, að það hefði verið hægt — þá hefðu hlotist af því vandræði fyrir verksmiðjuna og sveitirnar í kring, sökum þess, að þá hefði vantað fólk til að vinna í verksmiðjunni. En það er nú upplýst af norðanblöðunum, að á sama tíma og talað var um að vísa þessum mönnum frá var fjöldi atvinnulausra manna á Akureyri, sem fúslega hefðu fengist til að taka að sjer þessa vinnu. Og fellur því ástæða hæstv. atvrh. (MG) fyrir þessu atriði um koll.
Skýrsla hæstv. atvrh. (MG) var að sumu leyti merkileg, en í raun og veru upplýsti hún ekkert nýtt, sem gæti gert það að verkum, að ekki þyrfti frekar að rannsaka málið. Ýms atriði bentu þvert á móti á það gagnstæða. T. d. sýnir símskeyti hæstv. stjórnar frá 31. júlí síðastl., að hæstv. stjórn hefir þá litið svo á, að þetta væri mjög alvarlegt mál og full ástæða til, að það væri ítarlega rannsakað. Jafnvel skeytið bendir til þess, að um sakamálsrannsókn gæti verið að ræða. Þá hefir hæstv. ráðherra a. m. k. litið svo á, að rannsóknar þyrfti við.
Annað hefir ekki verið upplýst, nema ef telja skyldi tvö atriði, að hæstv. ráðh. fór á bát, en ekki í bíl, út að Krossanesi og að hann drakk þar kaffi, en borðaði þar ekki miðdegisverð. Þetta eru nú reyndar ekki veigamikil atriði, og þau hreinsa ekki hæstv. atvrh. (MG) neitt í þessu máli.
Það, sem hæstv. ráðherra sagði og hefir áður sagt í viðtali við blöðin, gengur alt út á það að afsaka verksmiðjueigandann í Krossanesi, svo sem um enga sök sje að ræða. Svo fljótur var hann á sjer að skýra frá þessu í blöðunum, að hann varð síðar að leiðrjetta talsvert, sem hann hafði farið rangt með. (Atvrh. MG: Hvenær?). Í sumar, 19. sept., kom viðtal við Morgunblaðið, og rjett á eftir varð hæstv. atvrh. að leiðrjetta sumt af því, sem þar var sagt, af því að löggildingarstjórinn hafði leiðrjett ýms atriði úr frásögninni.
Hæstv. atvrh. virðist hafa tekið alt trúanlegt, sem forstöðumaðurinn í Krossanesi sagði. Þegar hann segir frá viðtali þeirra, er altaf viðkvæðið: „þá spurði jeg“ — „þá sagði Holdö“, og það er alt gott og gilt, sem Holdö segir.
Mikið hefir verið um það rætt, hvort fullkomlega löglegt hefði verið að banna að flytja inn norsku verkamennina. En jeg vil leyfa mjer að spyrja hæstv. atvrh.: Ef hann hefir álitið, að hann gæti ekki bannað þennan innflutning, því sagði hann þá ekki frá því í sumar? Og því var hann að takmarka töluna, ef hann áleit, að ekkert leyfi þyrfti til innflutnings? Honum var skylt að leyna ekki neinu um löggjöfina í þessu efni.
Hæstv. atvrh. hefir sagt hjer í dag — og borið fyrir sig sjálfan forstöðumanninn í Krossanesi í því sem öðru, er þetta mál snertir — að verksmiðjan í Krossanesi hafi ekki fengið meira en henni bar, þó að síldarmálin væru lítrum stærri en til var ætlast. Það má nú geta nærri um það, hvort verksmiðjan hefir ekki gætt þess, að síldarmálin væru jafnan full, og þetta, sem hann hefir eftir Holdö, að kerin sláist oft við bryggju eða skip, svo að meira og minna fari úr þeim, er auðvitað slúður, sem hæstv. ráðh. getur varla verið þektur fyrir að bera fram sem röksemd í málinu.
Það glopraðist út úr hæstv. ráðherra í lok ræðunnar, að það gæti verið óheppilegt fyrir okkur að fara í mál við forstöðumann verksmiðjunnar, af því að hann væri stórþingsmaður í Noregi. Finnur ekki hæstv. ráðh., hve slíkar afsakanir eru óframbærilegar? (Atvrh. MG: þingmaðurinn verður að fara rjett með.).
Hjer er um stórfje að ræða, og má geta nærri, hvort maðurinn hefði sloppið við rjettláta refsingu, ef þetta hefði gerst með stórþjóð. Nei, þetta mál er alveg sjálfsagt að láta rannsaka. Það er að heyra af ræðu hæstv. ráðh., að hann þykist hafa þvegið sig hreinan af þessu Krossanesmáli. Ekki hefir hann þó enn minst á það, sem hann sagði í viðtali við blöð á Akureyri, að forstöðumaðurinn í Krossanesi hefði fengið ofanígjöf og ávítur. Það er eins og hann hafi verið að ávíta krakka, tekið hann á knje sjer og danglað eitthvað í hann. Slíkt framferði ráðherra er honum algerlega ósamboðið, og mjer finst sjálfsagt, að þingið láti málið til sín taka, úr því ekki voru öll gögn lögð fram þegar í þingbyrjun.
það er auðsjeð, að aðstaða stjórnarinnar er eitthvað veil; annars hefði hún lagt öll gögn fram. Að hún setur sig á móti þeirri tillögu, sem hjer er um að ræða, finst mjer bera vott um það, að eitthvað sje í málinu, sem hún vill dylja eða telur, að ekki megi koma fram. Ef hún ætlar þannig að nota meiri hluta vald sitt til þess að dylja fyrir þinginu það, sem það vill fá að vita, væri rjett að prófa, hverjir það eru, sem vilja fylgja henni.
Ýmislegt, sem fram hefir komið í þessu máli, m. a. sum ummæli hæstv. atvrh. (MG), bendir ótvírætt til þess, að Krossanesmálið sje þess eðlis, að full ástæða væri til þess að láta dómstólana rannsaka það. Í þá átt benda m. a. þessi frægu orð: „Jeg er ekki dómsmálaráðherra“.
Hæstv. forsrh. (JM) afsakaði sig með því, að atvrh. hefði ekki vísað málinu til sín. Þannig ásaka ráðherrarnir hvor annan, og því er þeim sjálfum ekki síst nauðsynlegt, að upplýst sje, hver hinn seki er, sem látið hefir rannsóknina dragast úr hömlu.
Hæstv. atvrh. sagði í sumar, að það væri vítavert af verksmiðjunni að hafa ekki löggilt mál. Annars var hlægilegt tal ráðh., þegar hann var að berja sjer, út af því, að löggildingarstofan var lögð niður. Því var hún lögð niður? Ekki lagði hann því liðsyrði, að hún starfaði áfram, þegar frv. um afnám hennar var fyrir í fyrra.
Að ekki voru löggilt 150 lítra mál, afsakaði ráðh. með því, að erfiðlega mundi hafa gengið fyrir verksmiðjuna að fá ný mál. Eru þessi síldarmál þá svo merkilegir gripir, að ekki sje auðvelt að afla sjer þeirra? Mjer er sagt, að þau sjeu gerð á þann hátt, að sagað sje ofan af olíutunnu — og nóg kvað vera til af þeim í Krossanesi — og jeg get ekki skilið, að það sje mjög vandasamt.
Í allri ræðu sinni mintist hæstv. ráðherra aldrei á það, sem þó er aðalatriðið í þessu máli, að í samningum öllum milli kaupanda og seljanda er gengið út frá 150 lítra síldarmálum. Ráðh. minnist ekki á, að til sjeu nokkursstaðar slík mál. Hann veit þó a. m. k., að til er verslun, sem heitir „Hinar sameinuðu ísl. verslanir“. Þær munu hafa haft nákvæmlega rjett mál. Og verksmiðjan, sem starfar fyrir vestan, mun einnig hafa haft rjett mál.
Jeg get nú lokið máli mínu. En jeg verð að segja, að margt er enn óupplýst þessu máli viðvíkjandi, t. d. um innflutning verkamannanna, leyfi stjórnarinnar og rannsókn bæjarfógetans á Akureyri samkvæmt skeyti stjórnarinnar. Jeg tel sjálfsagt að samþykkja þáltill. og að alt þetta sje rannsakað. Ef stjórnin mælir á móti því, virðist auðsætt, að hún þorir ekki að láta alt koma í lós.